
7 íslenskir kylfingar hófu leik í dag á Opna breska áhugamótinu!
Opna breska áhugamannamótið hófst í dag, 15. júní 2015 í Skotlandi, en mótið fer fram á tveimur völlum, Carnoustie og Panmure Angus. Þetta er í 120. sinn sem þetta sögufræga mót fer fram. Fyrstu tveir keppnisdagarnir eru höggleikur þar sem keppendur spila um að komast í sjálfa holukeppnina. Alls eru sjö íslenskir kylfingar á meðal keppenda en keppendurnir eru alls 288 frá 30 mismunandi þjóðlöndum. Tekið er mið af stöðu kylfinga á heimslista áhugamanna á þessu móti og aðeins þeir stigahæstu á þeim lista komast inn.
Andri Þór Björnsson úr GR og Gísli Sveinbergsson úr GK léku vel í dag eða á 68 höggum eða -2. Þeir eru jafnir í 14. sæti en alls komast 64 efstu eftir 36 holur í holukeppnina. Andri lék á Carnoustie vellinum í dag (68 högg) en Gísli á 70 höggum á Panmure Angus. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, lék á 71 höggi eða -1 á Panmure Angus. Aron Júlíusson, GKG, lék á 72 á Carnoustie en hann er í 104. sæti á +2. Haraldur Franklín Magnús, GR, lék á 76 höggum eða +6 á Carnoustie og er í 229. sæti. Rúnar Arnórsson, GK, lék á 77 höggum eða +7 á Carnoustie. Ragnar Már Garðarsson, GKG, lék á 85 höggum eða +13 á Panmure Angus og er hann í 285. sæti.
Það er að miklu að keppa á þessu móti þar sem að sigurvegarinn fær keppnisrétt á sjálfu Opna breska meistaramótinu sem fram fer á St. Andrews í Skotlandi í júlí. Að auki fær sigurvegarinn keppnisrétt á Opna bandaríska meistaramótinu sem fram fer á Oakmont Country vellinum á næsta ári, og sjálfu Mastersmótinu á Augusta á næsta ári.
Fyrir ári síðan komst Haraldur Franklín í 8 manna úrslit á þessu móti – sem er besti árangur hjá íslenskum kylfingi á þessu sögufræga móti.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024