Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2013 | 11:45

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon í 2. sæti eftir 1. dag Eagle Landing mótsins

Sunna Víðisdóttir, GR og golflið Elon hófu í gær leik á JMU/Eagle Landing Invite, í Orange Park, Flórída.

Spilað er í Eagle Landing golfklúbbnum í Orange Park, Flórída og má skoða heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: 

Völlurinn er 7037 yarda par-72 hannaður af Clyde Johnston. Þátttakendur í mótinu eru 97 frá 17 háskólum.

Eftir 1. dag eru Sunna og golflið Elon í 2. sæti í mótinu, í liðakeppninni. Í einstaklingskeppninni lék Sunna  á 5 yfir pari, 77 höggum og er í 47. sæti sem stendur.  Hún var á 4.-5. besta skori í liði sínu og taldi skor hennar.

Fylgjast má með gengi Sunnu og golfliðs Elon á Eagle Landing í Flórída með því að SMELLA HÉR: