Nýju stúlkurnar á LET 2013: Virginia Espejo – (21. grein af 43)
Það voru 42 stúlkur sem hlutu kortin sín á LET, þ.e. Evrópumótaröð kvenna á lokaúrtökumóti Q-school LET, m.ö.o. Lalla Aicha Tour School 2013, sem fram fór í Amelkis golfklúbbnum og Al Maaden golfstaðnum í Marrakech, Marokkó, dagana 13.-17. desember s.l. Þar af hlutu 30 efstu eða þær sem jafnar voru í 30. sætinu fullan keppnisrétt og nokkuð fleiri takmarkaðri spilarétt. Golf 1 tók þær stefnu að kynna líka hluta þeirra sem hlutu takmarkaðri spilarétt þ.e. stúlkurnar sem urðu jafnar í 31. sæti og voru 1 höggi frá því að hljóta fullan keppnisrétt og þær sem voru 3 höggum frá því og deildu 36. sætinu. Þær hafa allar verið kynntar ásamt kanadíska frægðarhallarkylfingnum Lori Kane, sem spilar á LET á undanþágu.
Þær 6 stúlkur, sem deildu með sér 25. sætinu, hafa einnig allar verið kynntar og í gær hófst kynning á næstu 5, sem deildu með sér 20. sætinu. Það eru þær: Elina Nummenpaa, Laura Cabanillas, Maha Haddioui, Virginia Espejo og Sarah King. Við byrjuðum á því að kynna Söruh King og í kvöld er Virginia Espejo næst.
Fullt nafn: Virginia Espejo
Ríkisfang: spænsk.
![]() |
Fæðingardagur: 18. júní 1989.
Fæðingarstaður: Madrid.
Gerðist atvinnumaður: í mars 2012.
Hæð: 174cm
Hárlitur: brúnn.
Augnlitur: brúnn.
Byrjaði í golfi: 13 ára.
Helstu áhrifavaldar í golfinu: Fyrstu þjálfarrarnir ,Freddy Lilly og Miguel Carrasco og foreldrarnir.
Áhugamál: íþróttir, hlusta á tónlist og horfa á kvikmyndir.
Býr nú í: Madrid.
Áhugamannsferill: Var í University of Southern Mississippi á golfskólastyrk.
Hápunktar ferilsins: Að komast í gegnum LET Lalla Aicha Tour school 2013.
Staðan í Lalla Aicha Tour School 2013: T-20.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

