Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (8/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 37

Sumum finnst stuttmynd frá árinu 1930 „The Golf Specialist“ þrælfyndin.  Í henni leikur W.C. Fields svindlara á hóteli, sem þykist vera að kenna eiginkonu hótelspæjarans golf.  „Hijinks ensue“ – gæti hafa verið notað í fyrsta sinn í þessari mynd! 🙂

Til að sjá „The Golf Specialist“ SMELLIÐ HÉR: