Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2015 | 13:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (7/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.
Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 38

Að Ian Woosnam undanskildum, þá er ekki til frægari „lítill“ kylfingur en Dorf, sem leikinn var af  Tim Conway í golfkennskumyndskeiðinu „Dorf on Golf.“ Með slæman hártopp og enn verri sænskan hreim, leikur Conway bolta í golfholu og er með golfskóna á hnjánum til þess að virðast vera ekki nema 1 m hár.  Svo eru Lennart og  Búmmbúmm La Roux auðvitað ómissandi.

Sjá má golfmyndskeiðið úr „Dorf on Golf“ með því að SMELLA HÉR: