Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (5/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:
Nr. 40

Ef einhver væri með þetta prakkarastrik á þinn kostnað værirðu fúll. En þegar maður horfir á Johnny Knoxville og mannskap hans í „Jackass: The Movie“ sem fela sig bakvið runna og þeyta hornum að kylfingum sem eiga sér einskis ills von og eru í baksveiflunni, þá finnst sumum það sniðugt.   Fórnarlömbin eiga lof skilið fyrir að tía boltana sína síðan bara aftur rólega upp.

Hér má sjá brot úr kvikmyndinni Jackass SMELLIÐ HÉR: