Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2015 | 12:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (4/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.
Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 41

Margar golfkvikmyndir hafa verið framleiddar.  Eða kvikmyndir þar sem golf kemur við sögu. Hér er ein þeirra: „I love you man“ frá árinu 2009.  Þar ákveða karakterinn sem Jason Segel leikur og kærastann hans að fara á golf deit, þ.e. leika saman golfhring.  Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?  A.m.k. sagði karakterinn á einum stað: „Þetta er martröð!“  …. en samt vill hann ekki að kærastann fari og segir: „Gerðu, það farðu ekki.“

Hljómar þetta flókið?  Það er betra að sjá þetta fyndna myndskeið sjálfur SMELLIÐ HÉR: