Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik í golfinu (16/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 28

„Space Jam“ er ein tekjuhæsta körfuboltamynd sem framleidd hefir verið.  Í henni koma fram margir frábærir körfuboltasnillingar á borð við Michael Jordan og Larry Bird og kylfingurinn og kvikmyndaleikarinn Bill Murray.  Og í myndinni er golfatriði sem mörgum finnst fyndið og má sjá með því að SMELLA HÉR: