Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2015 | 14:00

44 fyndnustu augnablik golfsins (41/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 4

Grínistinn George Carlin að tala um golf.  Sumum finnst það fyndið. Golf 1 ekki. A.m.k. ekki þegar hann segir golf vera „leiðinlegan leik fyrir leiðinlegt fólk“ En dæmið sjálf. Til að sjá myndskeið með Carlin að tjá sig um göfugustu íþrótta allra íþrótta SMELLIÐ HÉR