Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 10. 2015 | 18:00

44 fyndnustu augnablik golfsins (40/44)

E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”

Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.

Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:

Nr. 5

… er sena úr golfkvikmyndinni „Happy Gilmore.“ Þessi kvikmynd er nokkurskonar kult-golfkvikmynd og ein setningin í þessari senu staðalfrasi sem margir bandarískir kylfingar hafa á takteinum. Þetta er setning sem Adam Sandler, segir í hlutverki sínu í myndinni: „The price is wrong bitch“  Til þess að sjá þetta þekkta atriði í Happy Gilmore SMELLIÐ HÉR:  Taka skal fram að þetta er auðvitað skýrt dæmi um hvernig ekki á að hafa sér á golfvelli… jafnvel þótt illa gangi.