44 fyndnustu augnablik golfsins (26/44)
E.B. White skrifaði eitt sinn: „Að skilgreina húmor er eins og að kryfja frosk. Fáir hafa áhuga á því og froskurinn deyr.”
Þannig að finna 44 fyndnustu golfmómentin getur auðvitað ekki verið annað en nálgun byggð á húmor einhvers, sem öðrum finnst e.t.v. lélegur – málið er bara að ef nógu mörg atriði eru týnd til þá hlýtur að mega finna 1 eða 2 atriði sem e.t.v. má brosa að …. og þá er tilganginum náð.
Hér hafa fréttamenn Golf Digest varið miklum tíma og hláturköstum í að rifja upp fyndin móment í golfinu. Verði ykkur að góðu og vonandi finnið þið eitthvað sem ykkur þykir fyndið næsta 1 1/2 mánuðinn, sem Golf 1 birtir þessi fyndnu augnablik golfsögunnar:
Nr. 18
Bálreiðir kylfingar sem missa sig geta verið bráðfyndnir og alltaf er meiri athygli veitt þeim sem taka þátt í atvinnumannamótum og eiga að vita betur og hafa stjórn á sér. Dæmi um slíkan kylfing þar sem ekki gekk allt sem skyldi var Tommy Bolt á Opna bandaríska 1960. Hann fleygði drævernum sínum út í vatnshindrun eftir misheppnað teighögg og hélt því fram að hávaðinn í fiskunum sem stukku um í vatnshindruninni fengju sig alltaf til að húkka högg sín í vatnshindranir. Það fyndna hér var líka að þegar Bolt henti drævernum varð Claude Harmon að beygja sig til þess að verða ekki fyrir drævernum og krakki sem var meðal áhorfenda synti eftir drævernum og skilaði honum aftur til eiganda síns. Frá því að þetta atvik átti sér stað hafa ýmis önnur svipuð gerst í golfheiminum, þekkt og minna þekkt, en alltaf jafnfyndið að hlusta á svona sögur. Golf er jú eftir allt saman bara leikur 🙂
Arnold Palmer vann á Opna bandaríska 1960 og vann líka upp 7 högga mun fyrir lokahringinn, sem er mesta „come-back“ í sögu mótsins til dagsins í dag.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
