Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2012 | 09:30

Bandaríska háskólagolfið: Ólafi Birni gekk ekki vel á 2. hring NCAA Greensboro Regionals

Dagana 17.-19. maí fer á golfvelli Grandover Resort & Conference Center fram NCAA East Regional – NCAA Greensboro Regional, þ.e. svæðisúrslitin í Austur-deildinni.

Þátttakendur eru 75 og þeirra á meðal eru  Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte 49´s.

Í gær var spilaður 2. hringur í mótinu og verður lokahringurinn spilaður í dag.

Ólafur Björn er er búinn að spila hringina tvo á samtals + 11 yfir pari, 155 höggum (75 80) og er T-57.

Hann var á næstbesta skori Charlotte eftir fyrri daginn, en aðeins 4. besta skorinu í gær.

Charlotte háskólinn er í 12. sæti af 14, sem þátt taka.

Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis í dag!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag NCAA Greensboro Regional smellið HÉR: