
Sigurpáll Geir Sveinsson kennir í Golfskólanum að Hellishólum 18.-20. júní n.k.
Golfskólinn sumarið 2012
Sumarið 2012 verður í boði 1 námskeið í Golfskólanum á Hellishólum, námskeiðið fyrir bæði kynin.
Skráning er hafin í síma: 487-8360 eða hellisholar@hellisholar.is
Golfskólinn á Hellishólum
Námskeiðið er þriggja daga. Hópnum verður skipt í tvo hópa. Annar hópurinn spilar 9-18 holur og hinn fer í kennslu á meðan. Eftir hádegismat skipta hóparnir um hlutverk.
18.-20. júní – Námskeið fyrir bæði kynin
PGA golfkennarinn Sigurpáll G. Sveinsson mun kenna í golfskólanum á Hellishólum sumarið 2012. Sigurpáll hefur verið einn af okkar fremstu golfspilurum undanfarin 15 ár. Sigurpáll hefur hampað íslandsmeistaratitil karla þrisvar sinnum. Hann var fastamaður í landsliðum Íslands frá árinu 1991 – 2003. þegar hann gerðist atvinnumaður í golfi. Á 5 ára ferli sem atvinnumaður hefur Sigurpáll reynt að komast inná evrópsku mótaröðina, en ekki náð þeim árangri enn. Sigurpáll hefur gríðarlega reynslu sem afreksmaður í golfi bæði hérlendis og erlendis.
Árið 2005 ákvað Sigurpáll að fara í golfkennaranám, enda hafði hann starfað við barna-og unglingakennslu frá árinu 1991. Sigurpáll hefur kennt fólki á öllum getustigum golfsins síðan 2005. Hann útskrifaðist frá golfkennaraskóla Íslands vorið 2008 og hefur getið sér gott orð sem golfkennari. Í dag starfar Sigurpáll sem golfkennari ásamt því að vera formaður PGA á Íslandi, sem eru samtök atvinnukylfinga og golfkennara á Íslandi.
Þess má geta einnig að Sigurpáll hefur margsinnis verið farastjóri í hinum ýmsu golfferðum og kennt í golfskólum erlendis á vegum íslenskra ferðaskrifstofa og ættu því margir golfferðalingar að kannast við hann.
TIL ÞESS AÐ SJÁ ALLT NÁNAR UM NÁMSKEIÐIÐ SMELLIÐ HÉR:
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023