Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 1. 2012 | 10:55

22 golfmót í boði á morgun laugardaginn 2. júní

Kylfingar hafa úr gnægð golfmóta að velja á morgun laugardaginn 2. júní 2012, eða alls 22.

Sum eru að vísu lokuð eða bundin við aldur eða kyn. T.a.m. eru aðeins þeir sem eru 18 ára eða yngri sem keppa á Áskorendamótaröðinni í Sandgerði á morgun og eins á Unglingamótaröð Arion banka að Hellishólum.  Það sama er að segja um PING opið viðmiðunarmót LEK, sem spilað verður á Hvaleyrinni á morgun þar fá bara þeir sem eru 50+ að taka þátt.

Eftir standa 19 golfmót. Þar af er eitt lokað á Hellu en þar spila bræður Frímúrarareglunnar og eins er eitt, sem þegar er orðið fyrir löngu fullt í  en það er Styrktarmót Soroptimistaklúbbs Reykjavíkur í Oddinum. Enn eitt er lokað en það er Öryggismiðstöðvar Íslands mótið hjá Golfklúbbnum Glanna og enn önnur 3 mót eru innanfélagsmót þ.e. á Selfossi, Siglufirði og svo er „Einu sinni var… snærisleikurinn“ hjá GA.   Hjá NK er síðan styrktarmót til stuðnings GRÓTTU.

Eftir standa eftirfarandi 12 almenn golfmót, flest í tengslum við Sjómannadaginn, sem mörg hver er enn hægt að skrá sig í (og má gera með því að smella á undirstrikuðu línurnar á því móti sem valið er hér að neðan, en þar eru 12 linkar inn á golf.is). Af mótunum 12 eru 2 á höfuðborgarsvæðinu Fótbolti.net Open á Leirdalsvelli hjá GKG og Opna Odda mótið í Grafarholtinu hjá GR. Mótin 12 eru annars þessi:

02.06.12 GKB Húsasmiðjan open Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 GN Sjómannadagsmót GN og GLÓFAXA Almennt 1 Almennt
02.06.12 GV AxelÓ Texas scramble 1 Almennt
02.06.12 GSF Auðbjargarmótið – Sjómannadagsmót Almennt 1 Almennt
02.06.12 GKG Fótbolti.net Open Texas scramble 1 Almennt
02.06.12 GVS Opið mót Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 GSS Opnunarmót GSS Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 GR Opna ODDA mótið Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 GG Sjóarinn Síkáti – Þorbjörn HF Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 STEYPUSTÖÐIN – OPIÐ MÓT Punktakeppni 1 Almennt
02.06.12 GMS Skipavík Annað – sjá lýsingu 1 Almennt
02.06.12 Opna Hafnadagamótið Punktakeppni 1 Almennt