Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2016 | 08:30

2016 – Ár Ólafíu Þórunnar

Það er óhætt að segja að árið 2016 verður ár Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, GR,  sem ávann sér keppnisrétt á LET, næststerkustu kvenmótaröð í golfi í heiminum.

Að öðrum ólöstuðum þá er afrek hennar er að mati Golf 1 stærsta afrek íslensks íþróttamanns á síðasta ári og með ólíkindum að Ólafía Þórunn hafi ekki hlotið titilinn Íþróttamaður ársins 2015!

Golfklúbbur Reykjavíkur, Golfsamband Íslands og Forskot afrekssjóður heiðruðu Ólafíu með mótttöku í Laugardalshöll þriðjudaginn 29. desember s.l.

Keppnistímabilið hjá Ólafíu Þórunn hefst síðan í febrúar n.k.. Hún mun hefja ferilinn á LET Evrópumótaröðinni á móti sem fram fer á Nýja-Sjálandi og í kjölfarið taka við tvö mót sem fram fara í Ástralíu.

Keppnisdagatal LET (Evrópumótaraðar kvenna) er eftirfarandi:

Febrúar:
12.– 14. Nýja Sjáland
ISPS Handa New Zealand Women’s Open (Clearwater Golf Club Harewood).

18.– 21. Ástralía
ISPS Handa Australia Women’s Open (The Grange Golf Course, West Course).

– 28. Ástralía
RACV Ladies Masters (RACV Royal Pines Resort, Gold Coast, Queensland).

Mars:

– 13. Kína
World Ladies Championship (Mission Hills Dongguan’s Rose-Poulter & Olazabal Courses).

Maí:

5.– 8. Marokkó
Lalla Meryem Cup (Royal Golf Dar Es Salam, Rabat).
12. – 15. Kína
Buick Invitational (Shanghai Qizhong Garden Golf Club).
Júní:
5. – 8. Tyrkland
Turkish Airlines Ladies Open (National Golf Club, Belek, Antalya).

– 19. Tékkland
Pilsen Golf Masters (Golf Park Plzeň – Dýšina, Prag).

Júlí:

– 24. Skotland
Aberdeen Asset Management Ladies Scottish Open (Dundonald Links, Troon).
28. – 31. England
Ricoh Women’s British Open (Woburn Golf and Country Club)

Ágúst:

– 18. Brasilía
Ólympíuleikar (Reserva da Marapendi).
– 28. England
ISPS HANDA Ladies European Masters

September:

– 11. Svíþjóð
The Swedish Open.
– 18. Frakkland
Evian Championship (Evian Resort Golf Club, Evian-les-Bains).

Október:
6. – 9. Frakkland
Lacoste Ladies Open de France (Golf de Chantaco, Saint Jean De Luz).

– 16. Kína
Xiamen International Ladies Open (Xiamen Orient Golf Country Club, Haicang, Xiamen)
– 23. Kína
Sanya Ladies Open, (Yalong Bay Golf Club, Sanya, Hainan Province).
– 13. Indland
Hero Women’s Indian Open (DLF Golf and Country Club, Gurgaon).

Desember:

– 4. Japan
Kowa Queens Cup (Liðakeppni) (Miyoshi Country Club, Aichi Prefecture).
– 10. Sameinuðu arabísku furstadæmin
Omega Dubai Ladies Masters (Emirates Golf Club, (Majlis Course).

 

Golf 1 óskar Ólafíu Þórunni velfarnaðar og alls hins besta á komandi ári, 2016!!!