Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2023 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þóra Kristín Ragnarsdóttir – 6. júlí 2023

Afmæliskylfingur dagsins er Þóra Kristín Ragnarsdóttir. Þóra Kristín er fædd 6. júlí 1998 og því 25 ára stórafmæli í dag!!! Þóra Kristín er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hún spilaði á Íslandsbankamótaröðinni og hefir staðið sig vel þar á undanförnum árum.

Árið 2012, sigraði Þóra Kristín t.a.m. á 2. móti Unglingamótaraðar Arion banka að Hellishólum og spilaði um 1. sætið á 3. mótinu á Korpu.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Arnaud Massey, 6. júlí 1877; Þórhalla Arnardóttir, 6. júlí 1964 (59 ára); Liz Baffoe, 6. júlí 1969 (54 ára); Azuma Yano, 6. júlí 1977 (46 árs); Jón Gunnar Kanishka Shiransson, GÍ, 6. júlí 2006 (17 ára); Healing Energy ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Í aðalmyndaglugga: Þóra Kristín Ragnarsdóttir. Mynd: Golf 1