Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2020: Jake McLeod (14/28)
28 kylfingar tryggðu sér fullan spilarétt á Evrópumótaröðinni og mun Golf 1, líkt og á undanförnum vera með kynningu á þeim.
Meirihluti þeirra sem komst á Evróputúrinn, með þátttöku sinni í lokaúrtökumótinu eru reynsluboltar, sem margir hafa spilað á Evróputúrnum og í nokkrum tilvikum einnig bestu mótaröð í heimi PGA TOUR og voru þáttakendur í lokaúrtökumótinu því sérlega sterkir í ár.
Lokaúrtökumótið fór fram á Lumine golfstaðnum á Spáni, dagana 15.-20. nóvember 2019 að þessu sinni.
Í fyrsta sinn í golfsögunni voru 3 íslenskir keppendur á lokaúrtökumótinu: Andri Þór Björnsson, GR; Bjarki Pétursson,GB og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR. Því miður komst enginn þeirra á Evróputúrinn að þessu sinni.
Golf 1 hefir þegar kynnt þá 4, sem rétt sluppu inn á Evróputúrinn og urðu T-25 og þá 8 kylfinga sem deildu 17. sætinu. Nú er komið að því að kynna þá 4, sem deildu 13. sætinu en það eru: Johannes Veerman frá Bandaríkjunum, Garrick Porteous, frá Englandi, Jake McLeod, frá Ástralíu og Marcus Armitage frá Englandi.
Armitage hefir þegar verið kynntur og í dag er það Jake McLeod sem verður kynntur en hann lék líkt og hinir 3 áðurgreindu á samtals 14 undir pari, 414 höggum og varð því T-13 (eða uppreiknað í 15. sæti).
Jake McLeod fæddist þann 13. ágúst 1994 í Townsville, Queensland, Ástralíu og er því aðeins 25 ára.
Hann er 81 kg.
Heima í Ástralíu er hann í Royal Queensland golfklúbbnum.
McLeod gerðist atvinnumaður í golfi árið 2015.
Fyrsti sigur hans sem atvinnumanns kom árið 2018 á the New South Wales Open á Ástralasíu túrnum.
Sá sigur varð til þess að hann fékk tímabundinn spilarétt á Evróputúrnum 2019 og eins þátttökurétt á Opna breska risamótinu 2019, þar sem hann komst ekki gegnum niðurskurð.
Eftir að hafa orðið T-13 í Q-school ávann hann sér spilarétt áframhaldandi spilarétt á Evróputúrnum 2020.
McLeod er sem stendur nr. 306 á heimslistanum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
