Alejandro Cañizares Nýju strákarnir á Evróputúrnum: Alejandro Cañizares (27/27)
Golf 1 hefir á undanförnum árum kynnt „nýju strákana“ á Evróputúrnum og hafa nú verið kynntir allir nema einn af nýju strákunum á keppnistímabilinu 2019. Þann sem á eftir að kynna er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares.
Lokaúrtökumótið í ár fór fram á Lumine golfstaðnum í Tarragona, nálægt Barcelona á Spáni, dagana 10.-15. nóvember 2018 og voru að venju spilaðir 6 hringir.
Efstu 25 og þeir sem jafnir voru í 25. sætinu hlutu kortið sitt á Evróputúrnum. Í ár voru það 27 sem hlutu kortið sitt á Evróputúrnum.
Líkt og á undanförnum árum verður hafist á að kynna þá sem urðu í síðustu sætunum fyrst og endað á þeim sem sigruðu í Q-school þ.e. urðu efstir í lokaúrtökumótinu.
Í ár deildu 8 strákar 20. sætinu og komust því 27 „nýir strákar“ á Evróputúrinn í ár gegnum lokaúrtökumótið. Einn þeirra sem ekki komst að þessu sinni, þrátt fyrir frábæra spilamennsku var Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, GKG.
Þeir 8 sem deildu 20. sætinu, þ.e. urðu T-20 hafa nú allir verið kynntir en það eru: Kristian Krogh Johannessen, Filippo Bergamaschi, David Borda, Max Schmitt, Hugo León, Ben Evans, Kristoffer Reitan og Gavin Moynihan. Eins hefir sá verið kynntur sem einn hafnaði í 19. sæti en það var skoski kylfingurinn Marc Warren.
Sex kylfingar deildu 13. sætinu en það eru enski kylfingurinn Daníel Gavins, áströlsku kylfingarnir Deyen Lawson og Nick Cullen, Guido Migliozzi frá Ítalíu, Per Längfors frá Svíþjóð og Louis de Jager frá S-Afríku. Tveir deildu síðan 11. sætinu, báðir á samtals 19 undir pari þ.e Masahiro Kawamura frá Japan og Scott Gregory frá Englandi. Þeir hafa nú allir verið kynntir.
Sænski kylfingurinn Anton Karlsson og spænski kylfingurinn Ivan Cantero Gutierrez deildu 9. sætinu, en þeir léku hringina 6 á lokaúrtökumótinu á samtals 20 undir pari. Allir ofangreindu hafa verið kynntir.
Þeir, sem deildu 6. sætinu á lokaúrtökumótinu, allir á samtals 21 undir pari hver, voru franski kylfingurinn Clément Sordet, þýski kylfingurinn Bernd Ritthammer og sænski kylfingurinn Niklas Lemke. Síðan varð franski kylfingurinn Romain Langasque einn í 5. sæti á samtals 22 undir pari. Þeir hafa allir verið kynntir.
Daninn Jeff Winther og bandaríski kylfingurinn Kurt Katayama deildu 3. sætinu, á samtals 23 undir pari en báðir hafa verið kynntir. Bara á eftir að kynna Alejandro Cañizares frá Spáni, sem deildi 1. sætnu með Zander Lombard frá S-Afríku.
Alejandro Cañizares fæddist í Madríd á Spáni, 9. janúar 1983 og er því 36 ára. Alejandro spilaði í bandaríska háskólagolfinu með Arizona State. Hann varð atvinnumaður í golfi 2006 og komst strax á Evrópumótaröðina og hóf keppni þar með stæl því strax í 3. móti sínu sigraði hann á Imperial Collection Russian Open.
Pabbi Alejandro José Maria var líka á Evrópumótaröðinni – reyndar er Alejandro af einni þekktustu golffjölskyldu Spánar, en pabbi hans var m.a. í 4 Ryder Cup liðum fyrir Evrópu (1981, 83, 85, 89). Pabbi Alejandro vann líka heimsbikarinn með José Rivero, 1984, meðan bróðir hans Gabriel spilar á Áskorendamótaröðinni. Alejandro og pabbi hans urðu 3. feðgarnir til þess að sigra sama árið á Evrópumótaröðinni á eftir Antonio og Ignacio Garrido og Craig og Kevin Stadler.
Árið 2009 varð Alejandro að fara aftur í Q-school og þá varð hann í 5. sæti og hlaut keppnisrétt 2010 tímabilið. Það ár, 2010, varð hann 5 sinnum meðal topp 10 og varð í 38. sæti á stigalistanum.
Meðal áhugamála afmæliskylfingsins eru tónlist, íþróttir og að fara á ströndina. Á Spáni er Alejandro félagi í einum virtasta og besta golfklúbbi Evrópu, Valderrama.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
