Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 14. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Lauren Kim (33/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour.

Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur.

Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Svíþjóð og Robyn Choi frá Ástralíu.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í lokaúrtökumóti LPGA en varð ekki meðal efstu 45 og náði því ekki að endurnýja kortið sitt og fastan keppnisrétt á LPGA næsta keppnistímabil.

Það voru 6 stúlkur, sem deildu 39. sætinu og hafa þær einnig verið kynntar en það eru: Lee Lopez, Sandra Changkija, Lauren Coughlin og Stephanie Kono frá Bandaríkjunum; Pajaree Anannarukarn frá Thaílandi og Guilia Molinaro frá Ítalíu. Þessar 6 léku allar á samtals 9 yfir pari á lokaúrtökumótinu, hver. Síðan hafa þær sem deildu 36. sætinu verið kynntar en það eru: Suzuka Yamaguchi frá Japan; Louise Ridderström frá Svíþjóð og Sophia Popov frá Þýskalandi, en þær léku á samtals 8 yfir pari. Eins hafa þær 3 verið kynntar sem deildu 33. sætinu og léku á samtals 7 yfir pari en það eru Dori Carter og Lori Beth Adams frá Bandaríkjunum og Laetitia Beck frá Ísrael og sú sem var ein í 32. sætinu og lék á samtals 6 yfir pari, en það er María Fassi, frá Mexíkó.

Þær stúlkur sem deildu 27. sætinu á samtals 5 yfir pari voru Kristy McPherson, Cheyenne Knight, Sara Burnham og Lilia Vu frá Bandaríkjunum og Lily Muni He frá Kína.

Í dag verður hafist handa við að kynna þær 4 sem deildu 23. sæti og léku allar á samtals 4 yfir pari, hver, en þetta eru þær: Gemma Dryburgh, frá Skotlandi; Jing Yan og Xiyu Lin frá Kína og Lauren Kim frá Bandaríkjunum og verður byrjað á Kim.

Lauren Kim fæddist New Haven, Conneticut; dóttir hjónanna Alex og Soo Kim og á tvö systkini Drew og Caris.

Lauren Kim byrjaði að spila golf 9 ára ung.

Meðal áhugamála Kim eru að fara í gönguferðir, hlaupa, synda, vera í jóga, mála og baka.

Kim lauk keppni T-29 í Q-school árið 2016, þegar Ólafía Þórunn „okkar“ varð í 2. sæti.

Kim var í bandaríska háskólagolfinu og lék með liði Stanford í Kaliforníu (2012-2016) og er útskrifuð það með BA gráðu í nokkru sem á ensku heitir Science, Technology, and Society og útleggst eitthvað sem vísinda-, tækni- og þjóðfélagsfræði.

Helstu afrek hennar þar eru eftirfarandi:

*WGCA Division I First Team All-American árin 2014, 2015, 2016
* Pac-12 Scholar-Athlete ársins 2016
*Pac-12 All-Conference First Team árin 2015, 2016
*Leiddi lið sitt til fyrsta Led national championship árið 2015.

Þess mætti geta að Kim tók þátt í Q-school LPGA, þ.e. lokaúrtökumótinu 2017 og rétt slapp þá inn á keppnistímabilið 2018 og endurnýjar því hér veru sína á LPGA

Til þess að fræðast nánar um Lauren Kim má sjá:

*eldri kynningu Golf 1 á Kim frá því í hittifyrra með því að SMELLA HÉR:

*eldra viðtal Mercury News við hana frá árinu 2015 með því að SMELLA HÉR: