Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2014 | 09:30

15 skrítin met tengd golfi í heimsmetabók Guinness

Þann 17. desember 2014 þ.e. fyrir 3 dögum varð hinn 103 ára Gus Andreone sá elsti til þess að ná draumahögginu, en þetta var 8. ásinn hans á ferlinum, með 75 ára millibili frá 1. til 8. áss.   Sjá frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:

Golf Digest tók í framhaldi saman lista yfir 15 skrítnustu met tengd golfi í heimsmetabók Guinness.

Þetta eru t.d. heimsmetið yfir hæsta tíið; þann yngsta sem fengið hefir ás (Christian Carpenter 4 ára 195 daga); (yngstu stelpu sem fengið hefir ás Soona Lee-Tolley, 5 ára 103 daga) o.s.frv.

Nokkuð sérstakt líka metið yfir flesta leikna hringi á einum degi, 47 er það mögulegt? Þetta var reyndar á 9 holu golfvelli, í Edmonton, Kanada og sá sem afrekaði þetta heitir Robb James; en í alvöru: eru kannski fleiri tímar í sólarhring í Kanada?

Sjá má lista Golf Digest með því að SMELLA HÉR: