Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 28. 2012 | 20:00

12 svalir golfmunir af PGA vörusýningunni í Orlandó

Í Orlandó í Flórída hófst nú í vikunni 59. golfvörusýningin, þar sem golfvöruframleiðendur sýna allt það nýjasta sem er framleitt í golfheiminum. Allt frá tíum til nýjustu golftísku til golfbíla og golfvallahönnunar og allt þar á milli. Hreinlega allt sem viðkemur golfi. Sýningarsvæðið er gríðarstórt. Geysivinsælir eru básarnir þar sem prófa má nýjustu kylfurnar, sem kynntar eru á sýningunni.

Golffréttamaðurinn Ashley Mayo  hjá Golf Digest gekk sölubása á milli og valdi það sem hún taldi vera 12 svölustu golfmunina nú í ár.  Meðal þess sem hún valdi er swingbyte, lítið tæki sem komið er fyrir á golfkylfugripinu og mælir sveifluna og skemmtilegur golfbolur þar sem montað er af að maður hafi farið holu í höggi… en það er víst vísast að lesa línanna á milli. Dæmið sjálf:

Til þess að sjá svölustu golfmunina á 2012 PGA golfvörusýningunni í Orlando að mati Golf Digest smellið HÉR: