Keppendurnir 12 á Finnish International Junior Championship – Ragnhildur er fyrir miðju myndarinnar í rauðum bol – þ.e. 2. frá vinstri af þeim sem eru í rauðum bol 12 íslenskir unglingar taka þátt í Finnish International Junior Championship
Tólf keppendur frá Íslandi leika á Finnish International Junior Championship mótinu sem fram fer dagana 26.-28. júní á Cooke vellinum í Vierumäki í Finnlandi. Um er að ræða stúlkna og drengjamót í flokkum 15-16 ára og 14 ára og yngri. Alls taka 102 Finnar og 54 útlendingar þátt, en Ísland er með flesta keppendur utan Finnana. Einnig koma keppendur frá Þýskalandi, Svíþjóð, Belgíu, Danmörku, Tyrklandi og víðar.
Eftirfarandi keppendur frá Íslandi taka þátt: Birgir Björn Magnússon GK, Gísli Sveinbergsson GK, Fannar Ingi Steingrímsson GHG, Henning Darri Þórðarson GK, Kristján Benedikt Sveinsson GHD, Ragnhildur Kristinsdóttir GR, Birta Dís Jónsdóttir GHD, Gerður Ragnarsdóttir GR, Ólöf María Einarsdóttir GHD, Óðinn Þór Ríkharðsson GKG, Kristófer Orri Þórðarson GKG, Arnór Snær Guðmundsson GHD. Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari og Heiðar Davíð Bragason þjálfari norðurlandsúrvals GSÍ, eru fararstjórar og þjálfarar.
„Aðstæður eru mjög góðar, golfvöllurinn er virkilega góður og flatirnar mun hraðari en við þekkjum heima. Einnig er mikill hiti og sól. Þetta mót er vel skipulagt af hálfu finnska sambandsins og stefnir í skemmtilega keppni. Að taka þátt í svona móti er mjög mikilvægt fyrir okkar yngstu kylfinga, að geta reynt sig við góðar og krefjandi aðstæður og við sterka erlenda keppendur. Nokkur þeirra eru að taka þátt í sínu fyrsta verkefni erlendis og fyrir þau er þetta fyrst fremst til að öðlast reynslu, meðan aðrir eru þegar komnir með nokkra reynslu á erlendum vettvangi og setja markið hátt“ sagði Úlfar.
Í fyrra náði Fannar Ingi 3. sæti í 14 ára og yngri flokknum og Birgir Björn og Gísli höfnuðu meðal 10 efstu.
Hægt er að fylgjast með skori keppenda SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
