Ragnheiður Jónsdóttir | september. 19. 2015 | 14:00

Skrítið en satt (4/8)

Golfvöllurinn er rólegur staður þar sem hægt er að flýja raunveruleikann, en stundum er það sem gerist þar skrítnara en raunveruleikinn. Nick Price drævaði eitt sinn golfbolta og hann festist í óæðri enda svíns. Golf Digest bað þá sem „followa” blaðið á félagsmiðlunum (Twitter og Facebook) að deila skrítnustu sögum sínum af golfvellinum. Þar á meðal eru nokkur atriði sem virkilega koma á óvart; t.a.m. óheppni kylfingurinn sem leitaði skjóls fyrir stormi innan í færanlegu klósetti, en síðan feykti vindurinn færanlega klósettið út í móa. Við hér á Golf 1 ætlum að spara ykkur skítugu smáatriðin en hér fara nokkrar sögur sem okkur fundust skemmtilegar

FAIRMONT HOT SPRINGS RESORT, BRITISH COLUMBIA

Við vorum að spila 15. holuna á Mountainside golfvellinum, þegar við sáum hóp af 4 bjarndýrum nálægt flötinni. Það er ekki óalgengt á þessum slóðum, en það sem gerðist eftir að við vippuðum inn á flöt var ótrúlegt. Einn af bjarnarungunum greip um flaggstöngina og hristi hana og sveiflaðist síðan um hana eins og hann væri súludansmær. Þetta tók svona 2 mínútur. Við vorum með upptöku á farsímunum okkar og þetta YouTube video eru 2,6 milljónir búnir að sjá.

Til þess að sjá myndskeiðið af bjarnarhúninum SMELLIÐ HÉR: 

Pascal Van Dijk, Fairmont Hot Springs, British Columbia