John F. Kennedy, 35. forseti Bandaríkjanna í golfi
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2012 | 10:00

10 mestu kylfingar meðal Bandaríkjaforseta – myndskeið

Hverjir skyldu vera 10 bestu og mestu kylfingar meðal Bandríkjaforsetanna 44?  Er það Barack Obama, Dwight Eisenhower, Bush feðgar, Clinton eða Kennedy?

Það hefir löngum ekki verið  vinsælt að Bandaríkjaforsetar væru að leika sér í golfi, þegar þeir áttu að vera að sinna ábyrgðarfyllri störfum fyrir land og þjóð.

Það eru t.a.m. til mjög fáar myndir af Kennedy í golfi, svo mikið vildi hann fjarlægast ímynd ríks, iðjulauss forseta, sem hefði ekkert betra að gera en að vera í golfi, einkum m.t.t. gagnrýni sem aðeins var farið að gera vart við sig á dögum Eisenhower, sem var mikill kylfingur og fór ekkert leynt með ást sína á leiknum.

Til þess að sjá myndskeið sem sýnir 10 mestu kylfinga meðal Bandaríkjaforseta SMELLIÐ HÉR: