Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2012 | 09:00

Á annað þúsund Íslendinga spila í golfmótum eða eiga skráðan rástíma í dag

Eftirfarandi mót eru í boði í dag, þar af 4 opin:

05.05.12 GF Vorhreinsun GF Greensome 1 Almennt
05.05.12 GOS Vallaropnun GOS Punktakeppni 1 Innanfélagsmót
05.05.12 Opnunarmót Almennt 1 Almennt
05.05.12 GVS Afmælismót Punktakeppni 1 Almennt
05.05.12 GG Opna Veiðafæraþjónustan – Texas Scramble Texas scramble 1 Almennt
05.05.12 NK Hreinsunarmót Annað – sjá lýsingu 1 Innanfélagsmót

30 kylfingar eru skráðir í Vallaropnun GOS, sem er innanfélagsmót. Tungudalsvöllur þeirra Ísfirðinga opnar í dag og það sama er að segja um Selsvöll að Flúðum, en þar fer fram vorhreinsun vallarins og mót með greensome fyrirkomulagi.

Á Kálfatjarnarvelli fer fram afmælismót GVS og eru 53 skráðir í mótið.

Golfklúbbur Grindavíkur heldur Texas Scramble mót og er styrktaraðili Opna Veiðifæraþjónustan og höfðu 39 lið skráð sig í mótið eða alls 78 kylfingar.

Loks fer fram hreinsunarmót hjá Nesklúbbnum, en mótið er innanfélagsmót.

Ljóst er því að á 3. hundrað kyfinga sem spila á mótum í dag.

Allir helstu vellir höfuðborgarsvæðisins hafa opnað og þar sem sólin skín og sumarið er komið eru margir kylfingar að prófa „völlinn sinn“ í fyrsta sinn eftir mikið og erfitt golfleysi í vetur.  Þannig eru t.a.m. 235 kylfingar sem eru að spila í Grafarholtinu í dag og 223, sem eru að spila á Korpunni.

Á Hvaleyrinni eru 174 kylfingar sem ætla að spila og á Leirdalsvelli 218.  Á Urriðavelli eiga 178  kylfingar skráðan rástíma og á Hlíðarvelli uppi í Mosfellsbænum 121 kylfingur.

Ef  ofangreint er lagt saman kemur út að um 1449 kylfingar taka þátt í móti eða spila  á einum af stærstu golfvöllum landsins í dag eða á 2. þúsund Íslendingar.