Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 07:00

The Masters 2015: Hver er Annie Verret?

Jordan Spieth var kysstur og knúsaður í bak og fyrir, eftir sigurinn á Masters risamótinu  af fjölskyldu sinni, vinum og …. Annie Verret.

Annie Verret? Hver skyldi það nú vera?

Annie og Jordan hafa verið saman síðan þau kynntust fyrst 16 ára í highschool í Texas, en nú eru bæði 21 árs.

Jordan og Annie

Jordan og Annie

Og Annie, kærastan hans Jordan er ekki bara sæt, heldur þrælklár, en hún er með 4 (sem er það sama og 10 á Íslandi) í meðaleinkunn í viðskiptafræði frá Texas Tech.

Svo mikið er víst að hún verður með flottari WAG´s um í Ryder bikarnum, sem fram fer á næsta ári, 2016 í Bandaríkjunum.

Annie og Jordan eru líka bæði frá Texas og því sérstaklega Texas-búar sem eru afar stoltir af Jordan og reyndar fallega, unga parinu sínu, en þau Annie og Jordan þykja einstaklega flottir fulltrúar Texas og hinna góðu, gömlu Texas gilda.

Til þess að sjá myndir af þeim Jordan Spieth og Annie Verret SMELLIÐ HÉR: