Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2015 | 21:00

Rory hélt upp á nýja árið með nýja dömu sér við hlið

Rory McIlroy hélt upp á nýja árið með nýja konu sér við hlið, en hún bjargaði Ryder Cup fyrir hann þegar hann missti næstum af rástíma sínum.

Nr. 1 á heimslistanum (Rory) og Erica Stoll, flugu á vesturströnd Írlands þar sem þau fóru m.a. í þyrluferð í kringum Aran eyjur.

Seinna tékkuðu þau sig inn á Ashford kastala í Mayo, þar sem þau héldu upp á nýja árið með kampavíni á svítu kastalans.

Ashford kastali í Mayo á Írlandi.

Ashford kastali í Mayo á Írlandi.

Rory hefir þekkt Ericu í nokkur ár, en hún starfar fyrir PGA og bæði eru mjög aktíf innan golfhreyfingarinnar.

Þegar Rory missti næstum af rástíma sínum 2012 á Ryder Cup (kraftaverkinu í Medinah) þá var það Erica sem vakti hann.

Jafnvel þó Erica, sem er bandarísk, hafi haldið með Bandaríkjamönnum, sá hún til þess að Rory fengi lögreglufylgd á völlinn til þess að hann kæmist örugglega og missti ekki af rástíma sínum.

Turtildúfurnar hafa haldið sambandi síðan og yfir nokkra s.l. mánuði hefir vinátta þeirra þróast í nánara og rómantískara samband.

Um jólin sást til þeirra þar sem þau héldust í hendur á St Stephen’s Green í Dublin.

Skv. Mail on Sunday var parið í ótrúlega flottri svítu 5 stjörnu Westbury hótelsins, rétt hjá Grafton stræti.

Þetta var svolítið öðruvísi Gamlárskvöld fyrir nr. 1 (Rory) en fyrir ári síðan þegar hann bað Caroline Wozniacki  í Sydney, Ástralíu.

Rory og Caro

Rory og Caro

Caro og Rory höfðu áætlað að giftast í nóvember 2014 en Rory hætti með Caroline í maí, rétt eftir að brúðkaupsveisluboðskortin höfðu verið send út.

Caroline skrifaði stingandi tvít á 1. árs afmæli bónorðsins:

„Er ekki brjálað þegar maður getur litið aftur um öxl 1 ár aftur í tímann og séð hversu mikið allt hefir breyst?“

„Fjöldi fólks sem hefir farið út úr lífi manns,  komið inn í það og verið áfram.  Minningarnar sem maður gleymir ekki og stundirnar sem maður vildi að maður gæti (gleymt). Allt.

„Klikkað að allt þetta hafi gerst á einu ári.“

Rory flutti nýlega í nýja €2.5 milljóna glæsihýsi sitt í heimabæ sínum í Holywood, Co Down . á Írlandi en fyrirséð er að hann verði að verja meiri tíma á Írlandi vegna máls hans við fyrri umboðsskrifstofu sína, Horizon, en málið verður tekið fyrir að nýju í High Court í febrúar.