Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2017 | 14:00

Rickie Fowler endurgerir fræga Ryder Cup WAGS mynd

Golf 1 greindi frá því að einhverjir vinsælustu kylfingar Bandaríkjanna, Rickie Fowler og Jordan Spieth væru að slappa af saman á Bahamas eyjum. Sjá grein með því að SMELLA HÉR: 

Síðan kom einnig fram að vinir þeirra, þeir Justin Thomas og Smylie Kaufman farið á eftir þeim og þeir væru nú að endurtaka svipaða ferð og þeir fóru í eftir Masters 2016.

Félagarnir hafa stofnað heila síðu á félagsmiðlunum um ferð sína þar sem dælt er inn myndum.

Ein myndanna sem rataði á félagsmiðlana var endurgerð af frægri mynd sem tekin var af bandaríska Ryder Cup liðinu eftir frægan sigur þess í fyrra.

Á myndinni eru allir með kærustur eða eiginkonur (nefndar WAG´s á ensku) …. allir nema Rickie (sjá meðfylgjandi mynd).

Skyldi myndin sem Rickie birti vera auglýsing um að hann sé einhleypur?