Nýju stúlkurnar á LPGA: Lauren Kim (22/54)
Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.
155 þátttakendur voru að þessu sinni.
Nú hafa 20 stúlkur verið kynntar sem rétt sluppu inn á LPGA og eru með takmarkaðan keppnisrétt 2017.
Í gær var byrjað að kynna þær sem voru jafnar í 29. sæti en það eru: Jenny Coleman; Emily Tubert; Brittany Benvenuto; Daniela Darquea; Mina Harigae og Lauren Kim.
Þær léku allar á samtals sléttu pari, 360 höggum
Byrjað var á að kynna Minu Harigae, en í kvöld verður Lauren Kim kynnt
Lauren Jinah Kim fæddist í New Haven, Conneticut; dóttir hjónanna Alex og Soo Kim og á tvö systkini Drew og Caris.
Lauren Kim lék þegar golf í Los Altos menntaskólanum í Kaliforníu.
Síðan var Lauren í 4 ár í bandaríska háskolgolfinu (2012-2016) og lék með golfliði Stanford háskólans, líkt og Tiger og Michelle Wie og er í rauninni nýútskrifuð, en þegar komin með takmarkaðan spilarétt á sterkustu kvenmótaröð heims, LPGA.
Sjá má afrek Lauren Kim með Stanford í bandaríska háskólagolfinu með því að SMELLA HÉR:
Sjá má kynningarmyndskeið með Lauren Kim með því að SMELLA HÉR:
Loks mætti nefna að meðal áhugamála Lauren Kim er hlaupa, verða í jóga, á skíðum, á snjóbretti og að ferðast.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
