Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2017 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2017: Therese O´Hara (46/54)

Þann 30. nóvember – 4. desember 2016 fór fram 3. stigs mót LPGA, lokaúrtökumót um hverjar 20 myndu hljóta fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2016-2017 og hvaða keppendur hlytu takmarkaðan keppnisrétt þ.e. þær sem voru í sætum 21-45 og þær sem jafnar voru í 45. sætinu eða T-45.

155 þátttakendur voru að þessu sinni.

Næst verða þær kynntar, sem deildu 8. sætinu og hlutu kortið sitt og FULLAN keppnisrétt á LPGA, en það eru enski kylfingurinn Mel Reid (69 64 75 72 72); danski kylfingurinn Therese O´Hara (75 70 73 68 66) og kanadíski kylfingurinn Jennifer Ha (70 74 69 67 72).

Allar léku þær á samtals á 8 undir pari 352 höggum.

Mel Reid hefir þegar verið kynnt og í kvöld er það danski kylfingurinn Therese O´Hara.

Therese O´Hara

Therese O´Hara

Therese Koelbaek O´Hara fæddist 1. febrúar 1988 og er því 29 ára. Hún byrjaði að spila golf 11 ára. Hún ólst upp í Gentofte í Danmörku og segir eldri bróður sinn, þjálfann hennar í heimaklúbbnum og landsliðsþjálfara Danmerkur hafa haft mest áhrif á leik sinn.

Meðal áhugamála Therese eru að verja tíma með eiginmanninum Patrick O’Hara.

Therese spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði University of Nevada, Las Vegas (UNLV),  þar sem hún sigraði 4 sinnum.

Eins var hún um stund á smámótaröð Kaktustúrnum, þar sem hún á í beltinu 5 sigra.

Therese er í danska kvennalandsliðinu í golfi.

Therese reyndi fyrst fyrir sér á lokaúrtökumóti LPGA  2012 og komst í gegn 2014 í þriðju tilraun sinni og spilaði því fyrst með fullan keppnisrétt á LPGA keppnistímabilið 2015.  Þar náði hún því miður aðeins að komast í gegnum 2 niðurskurði í 18 mótum sem hún tók þátt í og spilaði því að SYMETRA mótaröðinni 2016 en er nú aftur komin með FULLAN keppnisrétt á LPGA 2017. Oddaárin virðast reynast Therese vel!

Komast má á facebook síðu Therese O´Hara með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á góða vefsíðu Therese O´Hara með því að SMELLA HÉR: