Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2015 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Sei Young Kim (38/45)

Nú hafa allar stúlkurnar verið kynntar sem urðu í 9.-45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014.

Þær sem eru í 1.-20. sæti eru með fullan spilarétt en hinar sem urðu í 21.-45. sæti með takmarkaðan spilarétt.

Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Nú á aðeins eftir að kynna þar sem urðu í 8 efstu sætunum.

Byrjað verður á að kynna þær sem urðu T-6 þ.e. Sei Young Kim frá S-Kóreu, Simin Feng, frá Kína og Ha Na Jang frá S-Kóreu.

Í dag verður Sei Young Kim kynnt.

Sei Young Kim lék á samtals 7 undir pari, 353 höggum (69 71 70 70 73) á lokaúrtökumótinu.

Sei Young Kim fæddist 21. janúar 1993 og er því 22 ára.

Hún hefir sigrað 5 sinnum á kóreanska LPGA og tvívegis nú í ár 8. febrúar 2015 á Pure Silk-Bahamas LPGA Classic og 18. apríl 2015 á  LPGA Lotte Championship.

Sei Young Kim hefir einnig gengið vel í kvenrisamótum ársins; þannig varð hún T-4 í Ana Inspiration og í 2. sæti á US Women´s PGA Championship

Hún er sem stendur í 10. sæti á Rolex-heimslista kvenna og þykir líkleg til að vinna nýliðaverðlaunin eftirsóttu á LPGA í lok árs.