Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 18. 2017 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2017: Nina Pegova (18/66)

Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.

Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.

Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.

Það voru 4 stúlkur sem höfnuði í 47. sæti allar á samtals 3 yfir pari, 363 höggum, en þetta eru þær: Saaniya Sharma, Ainil Bakar,
Nina Pegova og Chloe Williams.

Chloe Williams hefir þegar verið kynnt og í dag er það Nina Pegova

Nina Pegova fæddist 5. janúar 1994 í Moskvu í Sovétríkjunum og er því nýorðin 23 ára.

Nina byrjaði að spila golf 13 ára. Hún nam við rússneska háskólann í hagfræði (ens.: Russian University of Economics)

Þegar hún er ekki á golfvellinum finnst henni gaman að lestri góðra bóka og stærðfræði.

Nína Pegova hefir undanfarin 2 ár spilað á LET Access: árið 2014 spilaði hún í 3 mótum og lægsti hringur hennar var á Ingaro Ladies Open þar sem gestgjafi var Elin Emanuelsson, en þar var hún á 1 yfir pari, 70 höggum og lauk keppni T-30.

Pegova spilaði síðan í 5 mótum 2015 og var besti árangur hennar á CitizenGuard LETAS Trophy sem fram fór í Belgíu þar sem skor hennar var 75, 75, 75 og hún varð T-41.

Nú er Pegova komin með takmarkaðan spilarétt á LET.