Nýju stúlkurnar á LET 2017: Meghan Maclaren (33/66)
Lokaúrtökumót LET fór fram á golfvöllum í Samanah og Almelkis golfklúbbana í Marokkó, dagana 17.-21. desember 2016 og voru spilaðir hefðbundnir 5 hringir.
Efstu 30 í lokaúrtökumóti LET, Lalla Aicha Q-school í Marokkó hlutu fullan og næstu 36 þ.e. þær sem höfnuðu í sætum 31-66 takmarkaðan spilarétt.
Stoltið okkar, sú sem hafnaði í 2. sæti, Valdís Þóra Jónsdóttir, hefir þegar verið kynnt en nú verður hafist handa við að kynna hinar og byrjað á þeim sem rétt sluppu inn á LET.
Nú erum við að kynna þær óheppnu, sem höfnuðu í 34. sætinu og voru við það að hljóta fullan spilarétt á LET, en leika því miður allar á LET Access og hafa aðeins takmarkaðan spilarétt; þær voru allar á samtals sléttu pari, 360 höggum, hver.
Þetta eru þær: Elina Nummenpaa frá Finnlandi (68 71 72 74, 75) spænski kylfingurinn Silvia Bañon (70 75 71 69 75), franski kylfingurinn Ines Lescudier (69 76 70 72 73) og Charlotte Thompson (79 67 69 72 73) og Meghan Maclaren frá Englandi (73 67 73 75 72); Angella Then frá Bandaríkjunum (75 73 71 69 72) og Nina Muehl ( 72 71 72 69 76)
Allar nema Meghan Maclaren hafa verið kynntar og verður hún nú kynnt að síðustu.
Meghan Maclaren er frá Northamptonshire í Englandi; hún fæddist 15. maí 1994 og er því 22 ára.
Hún gerðist atvinnnumaður í golfi eftir frábæran áhugamannsferil. Hún setti m.a. niður sigurpúttið í Curtis Cup liðakeppninni og vann medalíu í 2016 European Championships og sigraði í 8 einstaklinskeppnum á NCAA mótum meðan hún var í bandaríska háskólagolinu með liði Florida International University, en hún er einn besti kylfingur í sögu skólans. Hún er þrátt fyrir ungan aldur þegar búin að sigra á 1 LET móti þ.e. Santander Ladies Open í 2. deildinni þ.e LET Access Series.
Utan vallar er Meghan stuðningsmaður Newcastle United.
Meghan er í enska kvennalandsliðinu í golfi og má sjá yfirlit yfir helstu golfafrek Meghan á síðu golfsambands Englands með því að SMELLA HÉR:
Komast má á Twitter síðu Meghan með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
