Nýju stúlkurnar á LET 2015: Virginia Espejo (9/34)
Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.
Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.
Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.
Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.
Byrjað verður að kynna þær 9 stúlkur sem urðu í 26.-34. sætinu; allar á samtals 1 yfir pari, en það var skorið, sem þurfti til að komast inn á Evrópumótaröð kvenna í ár.
Nú hafa allar af þessum 9 stúlkum nema 1 verið kynntar þ.e. þær Laura Murray og Heather MacRae frá Skotlandi, Lucie André frá Frakklandi, og Melissa Eaton frá Suður-Afríku, Rebecca Sörensen og Lynn Carlson frá Svíþjóð og Lauru Jansone frá Lettlandi og Amber Ratcliffe, en nú er komin röðin að 9. og síðasta kylfingnum af þeim sem rétt komst inn á LET að þessu sinni þ.e. spænska kylfingnum Virginiu Espejo en hún var samtals á skorinu 1 yfir pari, 361 höggi (68 74 71 76 72).
Virginia Espejo fæddist 18. júlí 1989 í Madríd á Spáni og er því 25 ára. Virginía er 1,74 m á hæð með brúnt hár og brún augu. Hún byrjaði að spila golf 13 ára og segist hafa orðið fyrir mestu áhrifum frá fyrstu þjálfurum sínum þeim Freddy Lilly og Miguel Carrasco sem og foreldrum sínum. Virginia var á golfskólastyrk University of Southern Mississippi. Meðal áhugamála Virginíu eru íþróttir almennt, að hlusta á tónlist og horfa á kvikmyndir.
Virginia gerðist atvinnumaður í golfi 2013 og það var jafnframt fyrsta keppnistímabil hennar á LET. Hún varð í 157. sæti á peningalistanum og varð því að fara aftur í Q-school, þ.e. Lalla Meryem Tour School í Marokkó, þar sem hún flaug í gegn í 7. sætinu.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
