Nýju stúlkurnar á LET 2015: Nanna Madsen (34/34)
Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.
Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.
Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.
Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.
Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 2.-34. sætinu.
Nú er aðeins eftir að kynna sigurvegara 2015 Lalla Aicha Tour School, en það var Nanna Madsen frá Danmörku.
Sigurskorið hjá henni var samtals 17 undir pari, skorið 343 högg (68 70 71 70 63).
Nanna Madsen fæddist í Kaupmannahöfn 23. október 1994 og er því 20 ára. Nanna er í danska kvennagolflandsliðinu.
Nanna Koerstz Madsen byrjaði að spila golf í Smørum Golfklub árið 2004 þá 10 ára. Hún tók þátt í fyrsta stelpumóti sínu 12 ára, en það var árið 2007.
Hún spilaði um tíma í bandaríska háskólagolfinu með liði University of South Carolina.
Hún komst á LET í fyrstu tilraun og það með glæsibrag; tók 1. sætið í Lalla Aicha Tour School í Marokkó og gerðist í kjölfarið atvinnumaður í golfi.
Stærsti sigur hennar fram til þess var í mars 2014 þegar hún tryggði sér einstaklingstitilinn í European Nations Cup í Sotogrande, á Spáni.
Sá sigur vannst eftir að hún var að berjast um sigur í Spanish Ladies’ Amateur Championship.
Árið 2013 tók Nanna þátt í Ladies’ British Amateur Championship.
Hún sigraði einnig í A6 Ladies Open, í Svíþjóð.
Meðal sigra henanr sem áhugamanns mætti geta sigur í DM Slagspil og European Club Trophy.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
