Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 14. 2015 | 11:30

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Linda Henriksson (13/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó.

Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku.

Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015.

Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34.

Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 26.-34. sætinu, allar á samtals 1 yfir pari.

Næst verða þær 7 stúlkur kynntar sem urðu í 19.-25. sætinu, allar á samtals sléttu pari, en það eru: finnsku stúlkurnar Marika Voss, Elina Numenpaa og Linda Henriksson; Lien Willems frá Belgíu; Alex Peters frá Englandi; Nina Muehl frá Austurríki og Marta Sanz frá Spáni.

Sú sem kynnt verður í dag er finnska stúlkan Linda Henriksson.  Hún var á samtals sléttu pari, skorinu 360 högg (72 70  74  70  74)

Linda Henriksson fæddist 13. september 1989 í Tornía, Finnlandi og er því 25 ára.

Þó hún sé fremur óþekkt númer í golfinu hefir Linda þegar komist inn á lista „Golf Spelled Backwards“ yfir 13 kynþokkafyllstu kylfinga kvennagolfsins árið 2014! Á þeim lista er frænka Tiger, Cheyenne Woods talin kynþokkafyllsti kvenkylfingurinn og Linda er í 9. sæti. Sjá með því að SMELLA HÉR: 

Áhugamál Lindu eru íþróttir almennt, tónlist, tísku, kvikmyndir og matur.  Linda gerðist atvinnumaður í golfi 2014.

Í Lalla Aicha náði Linda 5 fuglum á síðustu 7 holunum og gulltryggði sér þar með kortið sitt á LET 2015!

Fylgjast má með Lindu á Twitter með því að SMELLA HÉR:

Fræðast má nánar um Lindu á vefsíðu hennar með því að SMELLA HÉR: