Chesson Hadley
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2014 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Chesson Hadley (23/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í  3. sæti, en það er  Chesson Hadley. 

Hadley  tók  þátt í Web.com Tour Finals eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu en varð í 3. sæti þ.e. sama sæti og hann náði í gegnum peningalistann.

Chesson Hadley fæddist 5. júlí 1987 í Raleigh, Norður-Karólínu og er því 26 ára. Hadley byrjaði í golfi 6 ára og var búin að brjóta par 13 ára. Hann er sonur Russell og Ednu Ruth Hadley. kynntist konu sinni Amöndu í grunnskóla.   Amanda og Chesson giftust 17. júlí 2010 og eiga 1 son.

Nokkuð sérstakt er við Hadley að hann er örvhentur en spilar golf rétthentur.

Hadley byrjaði að spila golf í at North Ridge Country Club og lék síðan með golfliðinu í menntaskóla þ.e.  North Raleigh Christian Academy. Síðan lék Hadley með golfliði Georgia Tech í 4 ár og útskrifaðist þaðan í viðskiptafræði (Business Management) árið 2010.  Eftir útskrift gerðist hann strax atvinnumaður í golfi.

Meðal hápunkta í ferli hans segir hann að hafi verið að sigra í The Rex Hospital Open  á Web.com Tour í heimabæ sínum Raleigh, en það varð m.a. til þess að hann krækti sér í 3. sætið á peningalista þeirrar mótaraðar 2013….. það og 2. sigurinn á Web.com Tour 2013 en hann sigraði líka á  Web.com Tour Championship.

Meðal afreka á áhugamannsferlinum er að hann var í bandaríska liðinu í Palmer Cup 2008.

Hadley er þegar búinn að láta að sér kveða á PGA Tour á þessu keppnistímabili en Chesson Hadley sigraði í  the Puerto Rico Open sem fram fór á the Trump International golfvellinum. Hadley var á mótsmeti 21-undir pari og vann sér inn  $630,000. Hann hlaut líka það sem honum hefir eflaust þótt meira um vert 2 ára undanþágu til að spila á PGA Tour og 2 ára og þátttökurétt í  The Players Championship, PGA Championship og Hyundai Tournament of Champions.  Hann hlaut hins vegar ekki þátttökurétt í Masters mótinu með sigri sínum …. og á það risamót því eftir.

Samtals er Hadley búinn að vinna sér inn $1,340,173 á keppnistímabilinu og er í 70. sæti á heimslistanum.

Aðspurður í viðtali hver yrði síðasta máltíð hans ef hann mætti velja eina slíka sagði Hadley: Ruth’s Chris filet,  franskar frá McDonalds, Bojangles Chicken Supremes og poppkorn í desert.

Hægt er að fylgjast með Hadley á Twitter á  @chadleyprogolf