Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2015 | 08:30

Ný forsíðumynd Golf Digest af Lexi „naktri að ofan“ veldur harðri gagnrýni

Golf Digest birtir viðtal við nr. 9 á Rolex-heimslistanum, Lexi Thompson í nýjasta tölublaði sínu.

Úff það sést í brjóstin á Lexi í nýjasta tölublaði Golf Digest!

Úff það sést í brjóstin á Lexi í nýjasta tölublaði Golf Digest!

Forsíðumynd blaðsins, sem er af Lexi hefir valdið harðri gagnrýni meðal lesenda blaðsins vestra, einkum kvenlesenda, þar sem glögglega sést að Lexi er nakin að ofan þó hún haldi handklæði yfir brjóstum sér.

Fagnaðarefni er að kvenkylfingar komist á forsíðu eins virtasta golftímarits heims, en það gerist sárasjaldan.

Gagnrýnin hefir beinst að því að blaðið notfæri sér í sífellu kynþokka þeirra fáu kvenna, sem fá að vera á forsíðunni.

Kærasta Dustin Johnson, Paulina Gretzky, hlaut sömu gagnrýni þegar hún skreytti forsíðu Golf Digest í fyrra.

Sjá má mynd af Paulinu í Golf Digest hér að neðan:

Paulina Gretzky á forsíðu Golf Digest í fyrra - Af hverju þurfa konur alltaf að sýna nakta húð á forsíðu blaðsins?

Paulina Gretzky á forsíðu Golf Digest í fyrra – Af hverju þurfa konur alltaf að sýna nakta húð á forsíðu blaðsins?