Hver er kylfingurinn: David Lynn?
Enski kylfingurinn David Lynn var maðurinn sem hreppti 2. titil sinn á Evróputúrnum með sigri á Portugal Masters 2013 og fór úr 53. sætinu á heimslistanum upp um 19. sæti í 34. sætið. En hver er eiginlega kylfingurinn?
David Anthony Lynn fædist 20. október 1973 í Billinge, Merseyside, á Englandi og verður því 40 ára eftir nokkra daga.
Sem áhugamaður vann hann Greek Amateur Championship 1994 þar sem hann átti 8 högg á David Howell. Hann gerðist atvinnumaður í golfið árið 1995 og er því búin að vera að í 18 ár.
Á þeim tíma hefir hann sigra 2 sinnum á Evrópumótaröðinni og 1 sinni á Áskorendamótaröðinni. Hann hefir að mestu leikið á Evrópumótaröðinni á ferli sínum en er einnig með fullan keppnisrétt á PGA Tour, sem hann hlaut nú í ár 2013.
Mótið sem Lynn vann á Áskorendamótaröðinni var Team Erhverv Danish Open, árið 1997 og síðan var fyrra mótið sem hann vann á Evrópumótaröðinni KLM Open, árið 2004.
Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar er 18. sætið árið 2012 og hann hefir verið meðal bestu 100 kylfinga í Evrópu á hverju ári frá árinu 2000. Hann hefir verið meðal 50 bestu kylfinga á heimslistanum.
Lynn vakti m.a. athygli árið 2012 fyrir að klára í 2. sæti á PGA Championship 8 höggum á eftir sigurvegaranum Rory McIlory, en hann var á samtals 5 undir pari eftir að hafa átt 2 hringi upp á 68 um helgina. Þetta var annað af tveimur skiptum sem Lynn hafði yfirleitt spilað í risamóti! Árangur hans tryggði honum að hann gat aftur spilað í PGA Championship í ár og jafnframt hlaut hann að launum spilarétt í fyrsta sinn á ferlinum á The Masters. Hann fór líka upp í 40. sætið á heimslistanum, sem fram að þeim tíma var það hæsta sem hann hafði komist á heimslistanum.
Þar sem hann varð í 2. sæti á PGA Championship 2012 og þar sem hann hafði unnið sér inn nógu mikið verðlaunafé sem ófélagsbundinn, þá hlaut Lynn kortið sitt á PGA Tour 2013. Lynn var ansi nálægt fyrsta sigri sínum á PGA Tour í maí s.l. á Wells Fargo Championship. Hann var á samtals 8 undir pari í 1. sæti sem hann deildi með Derek Ernst eftir 72 holur. Hann tapaði síðan í bráðabana þegar á 1. holu eftir að hafa slegið 2. högg sitt í flatarglompu, sem hann komst ekki upp úr fyrir pari.
Nú í fyrradag, 13. október 2013, hins vegar vann Lynn Portugal Masters og var það fyrsti sigur hans í 9 ár á Evrópumótaröðinni og átti hann m.a. glæsilokahring upp á 63 högg!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

