Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 6. 2015 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Brittany Lincicome?

Bandaríski kylfingurinn Brittany Grace Lincicome sigraði í gær, 5. apríl 2015, á fyrsta kvenrisamóti ársins, ANA Inspiration (en mótið hét áður Kraft Nabisco Championship).

Brittany er fædd 19. september 1985 í St. Petersburg, Flórída og því 29 ára.

Brittany býr í bænum Seminole í Flórída, en bæjarheitið er hið sama og nafnið á eina indíánaættflokk, sem býr í Flórída, en þeir búa á Seminole-verndarsvæðinu og reka þar m.a. spilavíti.

Lincicome er meðal högglengstu kylfinga LPGA, slær um 278,6 yarda (255 metra) og þess vegna er hún oft kölluð Bam-Bam (með vísun til högglengdar sinnar).

Hún varð atvinnumaður 2004 eftir að hafa “útskrifast” í 20. sæti úr Q-school LPGA. Fyrsti sigur hennar var á HSBC-heimsmeistaramóti kvenna, árið 2006 (ens.: HSBC Women’s World Match Play Championship) þar sem hún sigraði Michelle Wie í fjórðungsúrslitum, Lorenu Ochoa í undanúrslitum og Julie Inkster í lokaeinvíginu um meistaratitilinn.

Næst sigraði hún í Ginn Open í apríl 2007, þar sem hún rétt marði Lorenu Ochoa á 72 holunni. Sama ár var Lincicome í fyrsta skipti með í liði Bandaríkjamanna í Solheim Cup og síðan einnig í Solheim Cup 2009, en í bæði skiptin vann bandaríska liðið sigur.

Brittany Lincicome vann sinn fyrsta sigur í risamóti árið 2009, þegar hún vann Kraft Nabisco mótið með ótrúlegum erni á 18. braut. Svo sem hefð er fyrir í Kraft Nabisco mótinu stakk hún sér í tjörnina við 18. flöt, til þess að fagna þessum risasigri. Það sama gerði hún í gær á Ana Inspiration sem er nýtt heiti Kraft Nabisco Championship.

Árið 2011 vann Brittany tvívegis á LPGA þ.e. í ShopRite LPGA Classic mótinu, 5. júní og í CN Canadian Women´s Open, 28. ágúst 2011. Árið 2012, sigraði hún ekki í neinu móti, á LPGA.

Brittany Lincicome hefir 4 sinnum átt sæti í liði Bandaríkjanna í Solheim Cup: 2007, 2009, 2011 og 2013.

Alls hefir Brittany Lincicome nú sigrað í 2 risamótum í bæði skiptin í Rancho Mirage og samtals 6 sinnum á LPGA (að báðum risamótunum meðtöldum); en sigurinn í gær er fyrsti sigur Brittany í 4 ár eða frá því að hún sigraði í CN Canadian Open 2011.