Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 7. 2015 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Ari og Theodór Emil og Arkansas Monticello luku leik í 13. sæti í Flórída

Ari Magnússon, GKG og Theodór Emil Karlsson, GM og golflið Arkansas Monticello luku leik á Argunaut boðsmótinu, sem fram fór í Tiger Point golfklúbbnum í Gulf Breeze í Flórída.

Mótið fór fram dagana 29.-31. mars 2015 og voru þátttakendur 85 frá 16 háskólum.

Theodór Emil lék á 240 höggum (81 78 81) og lauk keppni T-60 og á besta skori Arkansas Monticello.

Ari lék á samtals 242 höggum (74 84 80) og lauk keppni T-63 í einstaklingskeppninni og á 2. besta skori Arkansas Monticello.

Lið Ara og Theodórs Emils, Arkansas Monticello lauk leik í 13. sæti

Til þess að sjá lokastöðuna á Arunaut boðsmótinu SMELLIÐ HÉR: