
Wie á slæmu skori á US Women´s Open
Svo virðist sem framhald ætli að verða á slæmu keppnistímabili hjá Michelle Wie.
Wie, sem enn á eftir að sigra á 1. risamóti sínu á LPGA byrjaði illa á US Women´s Open í gær.
Michelle hóf leik á par-4 10. holunni í Sebonack golfklúbbnum og byrjaði á að fá snjókerlingu, þ.e. fjórfaldan skolla 8 högg. Síðan fylgdu í kjölfarið skolli á 14. holu og tvöfaldur skolli á 15. holu og var hún þá þegar komin neðarlega á skortöfluna.
Það leit allt svo vel út fyrr í mánuðnum þegar hún var búin að vera jafn öðrum í 9. sæti á tveimur mótum í röð – sem eru fyrstu topp 10 niðurstöður hennar árið 2013 – en hún er nú komin á Long Island eftir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurð á Walmart mótinu í Arkansas s.l. helgi.
Keppnistímabilið hefir verið hræðilegt fyrir Wie, en hún hefir í 6 skipti ekki komist í gegnum niðurskurð og ef fer sem horfir þá verður þetta 7. niðurskurðurinn, sem hún kemst ekki í gegnum.
Wie hefir líka verið í frjálsu falli á Rolex-heimslista kvenna í golfinu en þegar hún hóf feril sinn 2006, þá 16 ára var hún í 3. sæti listans. Nú er hún fallin niður í 82. sætið.
Fyrir utan framangreinda tvo T-9 árangra er eini árangur hennar á mótum það er af er ársins meðal 40 efstu T-28 á LPGA Lotte Championship.
Wie lauk fyrsta hring á US Women´s Open á 9 yfir pari, 80 höggum og er meðal allra neðstu af þeim sem lokið hafa keppni.
Inbee Park frá Suður-Kóreu leiðir af þeim sem lokið hafa keppni er á 5 undir pari, 66 höggum, en fjölmargar eiga eftir að ljúka leik.
Stöðufrétt eftir 1. dag US Women´s Open kemur hér á Golf 1 síðar í kvöld.
Fylgjast má með stöðunni á 1. hring á US Women´s Open með því að SMELLA HÉR:
- maí. 11. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2022
- maí. 10. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Jóhannsson og Mike Souchak – 10. maí 2022
- maí. 9. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Sunna Friðriksdóttir – 9. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jens Gud ———-– 8. maí 2022
- maí. 8. 2022 | 01:00 PGA: Keegan Bradley efstur f. lokahring Wells Fargo
- maí. 8. 2022 | 00:01 LET: Ana Pelaez í forystu f. lokahring Madrid Open
- maí. 7. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (19/2022)
- maí. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Brenden Pappas – 7. maí 2022
- maí. 7. 2022 | 12:30 Norman neitað um undanþágu til að spila á Opna breska
- maí. 7. 2022 | 06:45 PGA: Day leiðir e. 2. dag Wells Fargo
- maí. 7. 2022 | 06:00 LET: Koivisto efst e. 2. dag Madrid Open
- maí. 6. 2022 | 23:00 NGL: Bjarki bestur íslensku kylfinganna á Barncancerfonden Open
- maí. 6. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Long í forystu e. 2. dag á The Belfry
- maí. 6. 2022 | 18:00 Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins íþróttakona ársins hjá EKU
- maí. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Dean Larsson – 6. maí 2022