
Unglingar í GS í æfingaferð á Costa Ballena
Þann 16. mars s.l. fór 25 manna hópur GS-inga til Spánar, nánar tiltekið til Costa Ballena sem staðsett er syðst á Spáni. Um æfingaferð GS-unglinga er að ræða en 16 unglingar, 8 foreldrar og golfkennari GS fara í ferðina. Krakkarnir hafa safnað fyrir þessari flottu ferð í allan vetur með hinum ýmsu fjáröflunarleiðum og hafa margir orðið varir við söfnun þeirra.
Golfsvæðið á Costa Ballena er talið eitt af betri golfsvæðum Evrópu en það er hannað af US Masters meistaranum Jose Maria Olazabal. Golfvöllurinn er 27 holur auk 9 holu par-3 holu vallar. Æfingasvæði vallarins er eitt það stærsta og besta á Spáni en svæðið er flóðlýst og geta 140 manns verið við æfingar í einu. Landslið Spánar nota svæðið mikið til æfinga yfir vetrartímann.
Meðfylgjandi mynd setti Erla Þorsteinsdóttir golfkennari inn á Facebook fyrir 1 klst síðan, en það sýnir að ansi hvasst er á Spáni, þar sem vindurinn tekur vel í fánanna, m.a. þann íslenska, sem er lengst til vinstri:
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023