Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 16. 2014 | 07:00

Takið þátt í styrktarmóti Ólaf Björns í dag kl. 8:00-19:30 á Nesvelli!!!

Í dag fer fram styrktarmót Ólafs Björns Loftssonar á Nesvelli í Reykjavík og hefst mótið eftir 1 klst.,  kl. 8:00 og stendur til 19:30 í kvöld.

Skilaboðin frá tíföldum og núverandi klúbbmeistara Nesklúbbsins (Ólafi Birni) eru eftirfarandi:

Á miðvikudaginn næstkomandi (16. júlí) mun ég halda styrktarmót á Nesvellinum.

Ég stefni að því að taka þátt í úrtökumótum fyrir evrópsku og bandarísku mótaraðirnar í golfi í haust. Markmiðið er að vera í mínu allra besta formi þegar úrtökumótin hefjast og öðlast þátttökurétt meðal bestu kylfinga heims.

Mótið mun hefjast klukkan 08:00 og verður ræst út til klukkan 19:30. Ekki eru bókaðir rástímar heldur er boltarennan í gildi á fyrsta teig.

Leiknar verða 9 holur og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu sætin í höggleik án forgjafar. Einnig verða veitt nándarverðlaun ásamt því að dregið verður úr skorkortum.

Verðlaunaafhending er áætluð um klukkan 22:30.

Verð á hverjar 9 holur er 3.000.-kr. en þátttakendum er frjálst að leika fleiri hringi og telur þá besti hringurinn.

Fjöldi af frábærum verðlaunum í boði, þökk sé styrktaraðilum mótsins, til að mynda flugferðir til Evrópu með Icelandair og flugferðir innanlands með Flugfélagi Íslands.

Nesvöllurinn er í frábæru ásigkomulagi. Spáð er góðu veðri á miðvikudaginn, sól og rólegum vindi. Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og veita mér stuðning ásamt því að spila í skemmtilegu móti á flottum golfvelli.

Með golfkveðju,
Ólafur Björn Loftsson“