Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 28. 2014 | 21:45

PGA: Reed efstur fyrir lokahringinn á Quicken Loans

Það er Patrick Reed, sem leiðir fyrir lokahring Quicken Loans National mótsins.

Reed er búinn að spila á samtals 6 undir pari, 207 höggum (68 68 71).

Á hæla honum í 2. sæti koma Seung-Yul Noh frá Suður-Kóreu, Freddie Jacobson frá Svíþjóð og Ástralinn Marc Leishman; allir á samtals 4 undir pari, hver.

Hópur 6 kylfinga deilir síðan 5. sætinu,  er á samtals 3 undir pari hver: þ.e. þeir: Richard H. Lee; Shawn Stefani; Ben Martin; Justin Rose, Brendon DeJonge og Hudson Swafford.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag Quicken Loans National mótsins SMELLIÐ HÉR: