
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Brice Garnett (12/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 14. sæti, en það er Brice Garnett.
Garnett lék eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og varð í 23. sæti, þ.e. fyrir miðju þeirra 50 sem spila í Finals. Staða hans breyttist því ekkert hann varð fyrir miðju bæði á peningalistanum og í Finals.
Brice Garnett fæddist 6. september 1983 í Gallatin, Missouri og er því 30 ára.
Það var pabbi Garnett sem kynnti hann fyrir golfíþróttinni þegar hann var 4 ára og síðan þá hefir hann verið að spila sleitulaust. Á sumrin þegar hann var yngri spiluðu hann og 8 vinir hans golf frá morgni til kvölds.
Körfubolti heillaði hann þó meira í menntaskóla og hann var valinn í all-conference, all-district og all-regionals liðinu í körfunni.
Garnett gerðist atvinnumaður í golfi árið 2006 eftir að hafa útskrifast sem viðskiptafræðingur frá Missouri Westers State University, þar sem hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu í 4 ár.
Strax fyrsta ár sitt (þ.e. 2006) spilaði Garnett á Nationwide Tour en tókst ekki að halda keppnisréttindum sínum og spilaði á minni mótaröðum. Frá árinu 2010 hefir hann þó spilað á Nationwide Tour (nú Web.com Tour) allt þar til honum tókst að ná þessum fína árangri á peningalistanum 2013 að hann fékk kortið sitt á PGA Tour.
Meðaltalsskor Garnett á PGA Tour 2013-2014 eru 71,066 högg og hann hefir komist í gegnum niðurskurð í 14 af þeim 17 mótum, sem hann hefir spilað í á 2013-2014 keppnistímabilinu.
Fræðast má nánar um Garnett með því að fara á heimasíðu hans með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024