Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 26. 2014 | 09:00

Mörg góð skor hjá íslensku krökkunum í Finnlandi – Sigurður Arnar í 2. sæti – Ingvar Andri og Fannar Ingi í 3. sæti e. 1. dag

Golf 1 greindi frá því í gær að 17 íslenskir unglingar taki þátt í Finnish International Junior Championship styrktu af Finnair.

Mótið stendur 25.-27. júní og fer fram á Cooke golfvelli Vierumäen Golfseura, í Finnlandi.

Sjá má stöðuna í Finnish International Junior Championship með því að SMELLA HÉR: 

Íslensku þátttakendurnir eru 4 í telpnaflokki, 5 í strákaflokki og 8 í drengjaflokki.

Af íslensku keppendunum er nýkrýndur Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki Sigurður Arnar Garðarsson að standa sig best en hann er í 2. sæti í sínum flokki eftir 1. dag.  Fast á hæla hans, aðeins 1 höggi á eftir er Ingvar Andri Magnússon, GR.

Íslandsmeistarinn okkar í drengjaflokki, sem er margæfður í keppnum erlendis, Fannar Ingi Steingrímsson , GHG, stendur sig best í drengjaflokki, er í 3. sæti og af íslensku telpunum 4, sem þátt taka stendur Saga Traustadóttir, GR, sig best.

Staðan meðal íslensku þátttakendanna eftir 1. dag er eftirfarandi:

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG. Mynd: Golf 1

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG. Mynd: Golf 1

Strákaflokkur 14 ára og yngri (þátttakendur eru 48):  

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, 2 yfir pari, 74 högg, 2. sæti

Ingvar Andri Magnússon, GR, 3 yfir pari, 75 högg, 3. sæti

Magnús Friðrik Helgason, GKG, 8 yfir pari, 80 högg T-10 (þ.e. jafn öðrum í 10. sæti)

Kristófer Karl Karlsson, GKj, 10 yfir pari, 82 högg, T-18 (þ.e. jafn öðrum í 18. sæti)

Ingi Rúnar Birgisson, GKG, 14 yfir pari, 86 högg, T-30 (þ.e. jafn öðrum í 30. sæti)

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG. Mynd: Steingrímur Ingason

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG. Mynd: Steingrímur Ingason

Drengjaflokkur 16 ára (þáttakendur eru 60): 

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, 1 yfir pari, 73 högg, T-3 (þ.e. jafn öðrum í 3. sæti)

Henning Darri Þórðarson, GK, 5 yfir pari, 77 högg, T-18 (þ.e. jafn öðrum í 18. sæti)

Arnór Snær Guðmundsson, GHD, 7 yfir pari, 79 högg T-25 (þ.e. jafn öðrum í 25. sæti)

Kristján Benedikt Sveinsson, GHD, 8 yfir pari, 80 högg T-32 (þ.e. jafn öðrum í 32. sæti)

Jóel Gauti Bjarkason, GKG, 9 yfir pari, 81 högg, T-38 (þ.e. jafn öðrum í 38. sæti)

Bragi Aðalsteinsson, GKG, 9 yfir pari, 81 högg, T-38 (þ.e. jafn öðrum í 38. sæti)

Hlynur Bergsson, GKG, 10 yfir pari, 82 högg, T-41 (þ.e. jafn öðrum í 41. sæti)

Helgi Snær Björgvinsson, GK, 12 yfir pari, 84 högg, T-52 (þ.e. jafn öðrum í 52. sæti)

Saga Traustadóttir, GR, varð í 2. sæti á Íslandsmóti unglinga í holukeppni 2014 - í telpuflokki 15-16 ára. Mynd: Golf 1

Saga Traustadóttir, GR. Mynd: Golf 1

Telpuflokkur (þátttakendur 33)

Saga Traustadóttir, GR, 10 yfir pari, 82 högg, T-13 (þ.e. jöfn öðrum í 13. sæti)

Eva Karen Björnsdóttir, GR, 14 yfir pari, 86 högg, T-18 (þ.e. jöfn öðrum í 18. sæti)

Gerður Ragnarsdóttir, GR, 15 yfir pari, 87 högg, T-20 (þ.e. jöfn öðrum í 20. sæti)

Ólöf María Einarsdóttir, GHD, 15 yfir pari, 87 högg, T-20 (þ.e. jöfn öðrum í 20. sæti)