Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 23:59
Golfgrín á laugardegi: Kjúklingabóndatilviljunin

Gullfalleg kona, sem jafnframt var dágóður kylfingur sat á bar og drakk glas af kampavíni. Á hinum endanum á barnum situr kjúklingabóndi, sem færir sig nær konunni og fer að tala við hana. „Hvað ertu að drekka, er verið að halda upp á eitthvað?“ spyr kjúklingabóndinn. „Ég er að drekka kampavín,“ svarar kylfingurinn. „Nei, en sú tilviljun!“ segir kjúklingabóndinn, „ég er líka að drekka kampavín.“ „Er verið að halda upp á eitthvað?“ „Já,“ svarar kylfingurinn, „mér hefir gengið illa að eignast börn í 10 ár og ég var að fá þær fréttir að ég væri ófrísk!“ „Það er frábært að nema að því leyti að ég get ekki get ekki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 19:30
Eimskipsmótaröðin (1): Axel enn í forystu

Axel Bóasson, GK, leiðir enn eftir 2. dag 1. mótsins á Eimskipsmótaröðinni, Egils Gull mótsins, á samtals pari (70 74). Í dag fékk Axel 3 fugla og 3 skolla og allt leit út fyrir að hann myndi klára hringinn á parinu, en ólukkans skrambi á 16. braut varð til þess að niðurstaðan varð 2 yfir pari í dag. Axel hefir þægilegt forskot, 4 högg á Arnar Snæ Hákonarson, GR, sem búinn er að spila á 4 yfir pari (76 72). Arnar Snær bætti sig um 2 högg í dag frá því í gær! Þriðja sætinu deia Sigmundur Einar Másson, GKG og Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR á 5 yfir pari, hvor Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 19:25
Evróputúrinn: Cañizares leiðir

Það er spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares (félagi í hinum fræga Valderrama golfklúbbi í Andalucia), sem leiðir fyrir lokahring BMW PGA Championship. Hann er búinn að spila á 9 undir pari, 207 höggum (69 70 68). Í 2. sæti er Lee Westwood aðeins 1 höggi á eftir og verður gaman að fylgjast með Westy á morgun. Í 3. sæti eru Ítalinn Matteo Manassero og Skotinn Marc Warren, báðir á samtals 7 undir pari, 209 höggum, þ.e. aðeins 2 höggum á eftir forystunni, Cañizares. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 19:00
Eimskipsmótaröðin (1): Guðrún Brá enn efst í kvennaflokki eftir 2. keppnisdag

Öðrum hring í kvennaflokki er lokið í dag og heldur Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, forystunni. Guðrún Brá er samtals búin að spila á 8 yfir pari (72 79) – barðist eins og aðrir keppendur áfram í rigningu og kulda á Skaganum í dag. Öðru sætinu deila forgjafarlægsti kylfingurinn meðal kvennanna Sunna Víðsdóttir, GR og Tinna Jóhannsdóttir, GK, báðar aðeins 1 höggi á eftir Guðrúnu Brá. Þær eru báðar búnar að spila á samtals 9 yfir pari, hvor. Í 4. sæti er síðan Ragnhildur Kristinsdóttir í GR, á samtals 12 yfir pari (83 73) bætti sig um 10 högg milli daga og geri aðrir betur! Af keppendum í kvennaflokki er það annars Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 18:44
GÓ: Skeggjabrekkuvöllur ruddur

Á Ólafsfirði og reyndar á Norðurlandi öllu er enn allt á kafi í snjó. GÓ-ingum er líkt og öðrum farið að lengja eftir iðagrænum golfbrautum. Svo þreyttir voru þeir orðnir á ástandinu að fenginn var snjóplógur og síðan var hafist handa við að ryðja burt snjónum. Adolf Ingi og upptökulið RÚV tóku allt upp og má sjá afraksturinn hér fyrir neðan. Þeir í GÓ notuðu m.a. GPS tæki til þess að finna holurnar 🙂 Til þess að sjá Skeggjabrekkuvöll ruddan í upptöku RÚV SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Rafael Cabrera-Bello – 25. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rafael Cabrera-Bello frá Kanarí-eyjum. Hann fæddist í Las Palmas 25. maí 1984 og er því 29 ára í dag. Hann byrjaði að spila golf 6 ára og spilar á Evróputúrnum í dag. Hann hefir tvívegis sigrað á Evróputúrnum í fyrra skipið á Austrian Golf Open, 20. september 2009 og í það síðara á Omega Dubai Desert Classic mótinu, 12. febrúar 2012. Rafael á eina systur, Emmu, sem spilar á Evrópumótaröð kvenna (LET= Ladies European Tour) og bæði eru þau í Maspalomas golfklúbbnum heima á Kanarí. Hann komst í fréttirnar á þessu ári þegar farangri hans var stolið þegar hann var á leið frá Sviss til Malasíu þar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 10:30
Monty: Kjúklingamál Tiger og Garcia – „Verið að gera úlfalda úr mýflugu“

Nú hefir nývígður frægðarhallarkylfingur Colin Montgomerie (Monty) blandað sér í umræðuna um kjúklinga komment Sergio Garcia um Tiger. Hann sagði í því efni að verið væri að gera úlfalda úr mýflugu. Viðbrögð Monty við málinu og því að framkvæmdastjóri Evrópumótaraðarinnar O´Grady varð í kjölfarið að biðjast afsökunar var að verja O´Grady og finna til með Garcia, sem náði niðurskurði í gær á BMW PGA Championship í Wentworth þrátt fyrir hamfarirnar undanfarna daga í golffréttamiðlum. „Það er í sannleika sagt verið að gera úlfalda úr mýflugu,“ sagði Monty. „Algjörlega. Ég vona að þetta hafi ekki tekið neitt frá BMW mótinu, sem er frábært í alla staði.“ „Nú hefir framkvæmdastjórinn bættst við og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 09:30
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn lauk keppni í 97. sæti í landsmótinu í Georgíu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, lauk keppni í gær á landsmótinu í bandaríska háskólagolfinu, sem fram fór í Athens, Georgíu. Hún lék á samtals 21 yfir pari, 309 höggum (79 75 77 82). Ólafía Þórunn kom sér með frammistöðunni inn á topp-100 á, en hún var lengst af mótsins í 103. sæti af 126 keppendum, þ.e. hún lauk keppni í 97. sæti. Hún spilaði sem einstaklingur í landsmótinu en lið hennar Wake Forest komst ekki áfram úr svæðisúrslitunum. Mótið var gríðarlega sterkt, enda einungis þeir allra bestu í bandaríska háskólagolfinu, sem spila á landsmótum. Sigurvegari mótsins var Annie Park frá Southern California háskólanum, en hún lauk keppni á 10 undir pari Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2013 | 09:00
PGA: Kuchar leiðir á Crown Plaza

Matt Kuchar leiðir á Crown Plaza Invitational mótinu á Colonial golfvellinum, í Ft. Worth, Texas, eftir 2. dag mótsins. Hann leiðir á samtals 10 undir pari en varð að ljúka leik á 15. holu vegna myrkurs. Hann á því tækifæri á að auka enn forystu sína eða gæti runnið niður skortöfluna eftir að hann lýkur við síðustu 3 holurnar á fyrri helmingi mótsins. Í 2. sæti á 9 undir pari er Kanadamaðurinn Graham DeLaet (64 67). Þriðja sætinu deila síðan Josh Teater, heimamaðurinn Jordan Spieth, Steve Flesch og forystumaður gærdagsins Ryan Palmer, sem enn á eftir að klára 6 holur. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2013 | 20:45
Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2013
Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og því 18 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 3 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn.Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn á flöt og rúllaði Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

