Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2013 | 12:00
Evróputúrinn: 7 kg þyngdartap átti þátt í sigri Manassero á Wentworth

Matteo Manassero upplýsti að dramatískt þyngdartap hafi verið lykillinn að því að hann sigraði á BMW PGA Championship mótinu á Wentworth í gær. Manassero, 20 ára, varð sá yngsti til þess að sigra flaggskipsmót Evrópumótaraðarinnar, þar sem hann vann m.a. fyrrum sigurvegara mótsins Englendinginn Simon Khan með pari eftir 4 holu bráðabana. Manassero missti 7 kg, þar sem hann ætlaði ekki að endurtaka það þegar hann lét sigurinn ganga sér úr greipum á Wentworth fyrir 2 árum. „Í þessari viku þegar við áttum frí þá var ég fyrir alvöru í megruninni, ég sleppti öllum kolvetnum í 5 vikur og var bara almennt að reyna að grenna mig og gera það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2013 | 06:45
Viðtalið: Matt Kuchar

Matt Kuchar var í forystu fyrir lokahringinn á Crown Plaza Invitational en tapaði mótinu á síðustu metrunum gegn landa sínum Boo Weekley. Hér fara nokkrar spurningar sem lagðar voru fyrir Kuch á blaðamannafundi eftir sigurinn, í lauslegri þýðingu: SP: Boo varð fyrstur og vann þig, hvernig er tilfinningin nú um hvernig þú spilaðir lokahringinn? MATT KUCHAR: Þetta er hluti af golfleiknum. Maður spilar eins vel og maður getur undir kringumstæðunum. Þetta er svekkjandi fyrir mig. Þetta er mót og þetta golfvöllur sem ég elska. Þetta var mót sem ég vildi virkilega vinna. Þannig að vera þarna úti með tækifæri var spennandi. Ég vissi að það myndi þarfnast góð golfhringjar. Í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 23:45
PGA: Boo sigraði á Crown Plaza Inv.!

Það var Boo Weekley, sem bar sigur úr býtum á Crown Plaza Invitational á Colonial golfvellinum í Irving, Texas nú rétt í þessu. Weekley verður fertugur í júlí n.k.. Þetta er 3. sigurinn á PGA Tour. Boo lék á samtals 14 undir pari, 266 höggum (67 67 66 66) og átti 1 högg á Matt Kuchar, sem búinn var að leiða mestallt mótið. Risamótssigurvegarinn Zach Johnson varð í 3. sæti á samtals 12 undir pari. Scott Stallings, John Rollins og Matt Every deildu 4. sætinu á samtals 11 undir pari, hver. Til þess að sjá úrslitin á Crown Plaza Invitational SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 20:15
Crown Plaza Inv. í beinni

Nú er verið að spila lokaholurnar í Crown Plaza Invitational mótinu á Colonial golfvellinum, í Irving í Texas. Sem stendur er Boo Weekley í forystu. Fast á hæla honum, 2 höggum á eftir eru þeir Scott Stallings, Zach Johnson, Tim Clark og Matt Kuchar. Til þess að sjá Crown Plaza Invitational í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 20:00
LET: Holly Clyburn vann fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröð kvenna

Það var enska stúlkan Holly Clyburn sem vann sinn fyrsta sigur á Evrópumótaröð kvenna í dag, þegar hún sigraði á Deloite Ladies Open. Hún spilaði á 8 undir pari, 211 höggum (71 69 71) og átti 3 högg á næsta keppanda löndu sína Charley Hull, sem var á 11 undir pari (72 73 69). Í 3. sæti varð hin sænska Carin Koch á samtals 4 undir pari, 215 höggum. Bree Arthur, Camilla Lennarth og Carlota Ciganda deildu síðan 4. sætinu, á 3 undir pari, 216 höggum, hver. Til þess að sjá úrslitin á Deloite Ladies Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 19:30
Evrópumótaröðin: Manassero sigraði!

Það voru hvorki Lee Westwood né forystumaður gærdagsins Alejandro Cañazarez, sem sigruðu á BMW PGA Championship í dag á Wentworth vellinum…. heldur ítalski kylfingurinn Matteo Manassero. Manassero lék á samtals 10 undir pari, líkt og Marc Warren frá Skotlandi og Simon Khan frá Englandi og vann síðan báða í bráðabana. Hann skrifaði sig jafnframt í sögubækurnar sem yngsti sigurvegari mótsins frá upphafi en Matteo er 20 ára og 37 daga. Til þess að sjá úrslit BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 19:00
Eimskipsmótaröðin (1): Axel og Guðrún Brá endurtóku leikinn… frá því fyrir 2 árum!

Frændsystkinin úr Keili Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir endurtóku leikinn frá því fyrir 2 árum …. þegar þau sigruðu á Garðavelli á Akranesi í dag. Axel var á besta skorinu samtals 6 yfir pari, 222 höggum (70 74 78) og Guðrún Brá varð í 5. sæti yfir mótið í heild, ásamt klúbbfélaga sínum Rúnari Arnórssyni á 13 yfir pari, 229 höggum (73 79 77). Guðrún Brá sigraði kvennaflokk og átti 5 högg á þá sem varð í 2. sæti Sunnu Víðisdóttur, GR og 7 högg á frænku sína Tinnu Jóhannsdóttur, GK, sem varð í 3. sæti. Í 2. sæti í karlaflokki varð Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR á samtals 8 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Andri Már Óskarsson – 26. maí 2013
Það er Andri Már Óskarsson, GHR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Andri Már fæddist 26. maí 1991 og er því 22 ára í dag. Andri Már er klúbbmeistari GHR 2011 og frábær kylfingur með -0.4 í fgj. Andri Már m.a. valinn íþróttamaður HSK 10. mars 2012 Í dag, á afmælisdaginn er Andri Már að spila á Eimskipsmótaröðinni á Garðavelli á Akranesi, en hann komst í gegnum niðurskurð í gær, er í 27. sæti á samtals 16 yfir pari (80 80). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér: Andri Már Óskarsson (22 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jamie Spence, 26. maí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 07:00
LET: Lennarth leiðir í Hollandi

Það er sænski kylfingurinn Camilla Lennarth sem leiðir í Hollandi, á Deloitte Ladies Open, en mótið er hluti Evrópumótaraðar kvenna. Lennarth er búin að spila á samtals 7 undir pari, 139 höggum (66 73). Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Lennarth er enski kylfingurinn Holly Clyburn á 6 undir pari, 140 höggum (71 69). Þriðja sætinu deila síðan Melissa Reid, Carlota Ciganda og Christel Boeljon á samtals 4 undir pari, 142 höggum; Reid (70 72); Ciganda (71 71) og heimakonan Boeljon (70 72). Ítalski kylfingurinn Sophie Sandolo, sem leiddi snemma 1. dags er dottin niður í 24. sætið á samtals 1 yfir pari (73 74). Niðurskurður var miðaður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2013 | 04:00
PGA: Kuchar enn á toppnum

Matt Kuchar er enn í forystu eftir 3. dag Crown Plaza Invitational á samtals 11 undir pari, 199 höggum (65 65 69). Öðru sætinu deila Matt Every, Chris Stroud, Boo Weekly og Graeme DeLaet. Þeir eru allir aðeins 1 höggi á eftir Kuch, á 10 undir pari, 200 höggum; Every (65 69 66); Stroud (67 66 67); Weekley (67 67 66) og DeLaet (64 67 69). Þekktu nöfnin eru öll neðarlega á skortöflunni. T.a.m. er Angel Cabrera í 40. sæti, líkt og Camilo Villegas; Rickie Fowler er í 46. sæti; Jason Dufner er í 56. sæti; Robert Karlsson er í 62. sæti og Ryo Ishikawa í því 75. Til þess að sjá stöðuna Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

