Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 12:00
Golfbækur: Ný bók um golfkennara Jack Nicklaus – Jack Grout

Fyrsta golfkennslustund Dick Grout átti sér stað 1963. Hann var 10 ára og var að leika sér í golfi með Jack Nicklaus í La Gorce Country Club á Miami Beach í Flórída. „Ég var á u.þ.b. 3. eða 4. holu. Ég náði að setja niður langt pútt,” rifjaði Grout upp. „Ég er bara lítill krakki. Jack lítur á mig og spyr mig: „Hvað ertu að hugsa um þegar þú púttar?” Nú þið vitið hvað sagt er: reynið að pútta eins og krakkar þar sem hugur þeirra er ekki þjakaður af óþarfa. Ég sagði honum að ég hefði valið línu og reynt að setja niður. Þannig að þarna er Jack Nicklaus Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2013 | 08:45
Eygló Myrra kylfuberi Hedwall
Eygló Myrra Óskarsdóttir útskrifaðist frá University of San Francisco nú fyrir tæpum 2 vikum; þann 18. maí 2013. Fyrsta starf hennar eftir útskrift er að vera kylfuberi fyrir vinkonu sína og fyrrum liðsfélaga úr Oklahoma State, fimmfaldan sigurvegara á Evrópumótaröð kvenna, hina sænsku Caroline Hedwall. Eygló var kaddý Hedwall á Pure Silk mótinu á Bahamas eyjum, síðustu helgi þar sem hin suður-kóreanska Ilhee Lee sigraði. Hedwall var í holli með Lexi Thompson og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga, Stacy Lewis og hefir eflaust verið gaman og lærdómsríkt fyrir Eygló Myrru að fylgjast með. Eygló Myrra mun verða kaddý Caroline Hedwall í næstu 4 mótum.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 16:00
Viðtal við Guðrúnu Brá sigurvegara í kvennaflokki á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar 2013

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, sigraði kvennaflokkinn á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Egils Gull mótsins uppi á Skaga nú s.l. helgi. Hún lék hringina 3 á 13 yfir pari 229 höggum (73 79 77) og varð þar að auki 5. best yfir allt mótið í heild (kvenna- og karlaflokk). Þetta er í 2. sinn sem hún sigrar á stigamóti upp á Skaga, en Guðrún Brá vann sama mót fyrir 2 árum, árið 2011, ásamt frænda sínum Axel, sem vann karlaflokk, þá eins og nú. Golf 1 tók stutt viðtal við Guðrúnu Brá (sem nú er stödd í Englandi). Golf 1: Guðrún innilega til hamingju með glæsilegan sigur! Hvernig tilfinning er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 15:30
Sunna: „Viðbrigði að koma úr 25°“
Sunna Víðisdóttir, GR, varð í 2. sæti á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar, Egils Gull mótsins uppi á Skaga nú s.l. helgi. Hún lék hringina 3 á 18 yfir pari 234 höggum (78 75 81). Golf 1 tók stutt viðtal við Sunnu: Golf 1: Til hamingju með árangurinn upp á Skaga – Eru mikil viðbrigði að vera aftur farin að spila hér á landi miðað við hitann í Norður-Karólínu? Sunna: Þetta er auðvitað allt annað. Ég var að koma frá Bandaríkjunum úr 25° hita þarna á miðvikudeginum fyrir mótið, þannig að þetta var frekar erfitt. Golf 1: Já, nú voru aðstæður til leiks erfiðar vegna veðurs. Fannst þér veðrið hafa áhrif á leik Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 13:00
Axel: „Náum að klikka saman ég og Skaginn“

Nú um helgina fór fram fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni, Egils Gull mótið uppi á Skaga. Sigurvegari í karlaflokki varð Axel Bóasson, úr Golfklúbbnum Keili, í Hafnarfirði. Axel lék á samtals 6 yfir pari, 222 höggum (70 74 78) og átti 2 högg á næsta keppanda. Golf 1 tók stutt viðtal við Axel. Golf 1: Axel, innilega til hamingju með sigurinn, þetta er frábær árangur – þú endurtekur leikinn frá því fyrir 2 árum – Kanntu svona vel við þig uppi á Skaga? Axel: Já, ætli það ekki, við bara náum að klikka saman ég og Skaginn. Golf 1: Eru ekki mikil viðbrigði að koma frá Mississippi og spila í roki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 11:45
Tiger spilar í Tyrklandi

Númer 1 á heimslistanum Tiger Woods mun snúa aftur til Tyrklands síðar á þessu ári til þess að keppa á Turkish Airlines Open, sem þá mun verða hluti af Evrópumótaröðinni í fyrsta sinn. Mótið fer fram 7.-10. nóvember á Montgomerie Maxx Royal golfvellinum í Balek. Tiger mun verða einn af 77 leikmönnum í þessu 3. móti og nýrri 4 móta „Loka Seríu“ í lok The Race to Dubai. Skipuleggjendur mótsins höfðu tilkynnt á síðasta ári þegar Tiger keppti á Turkish Airlines World Golf Challenge að Turkish Airlines Open mótið myndi verða með verðlaunafé upp á 7 milljónir bandaríkjadala. Þetta er í 2. skiptið sem Tiger tekur þátt í móti Evrópumótaraðarinnar á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 11:28
Evróputúrinn: Alex hefur titilvörn

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er Nordea Masters, sem fram fer á Bro Hof Slot GC og hefst n.k. fimmtudag. Sá sem á titil að „heimamaðurinn“ Alex Noren. Hann vann 7 högga sigur í fyrra, eftir að hafa hafið lokahringinn með 11 högg á næsta mann eftir frábært vallarmet upp á 63 högg. Eftir að hafa náð 3 topp-10 áröngrum á þessu tímabili, þá vonast Noren til þess að snúa aftur á völlinn, sem hann þekkir eins og handarbakið á sér í von um að ná 4. titlinum. „Ég hef spilað Bro Hoff svo oft,“ sagði Alex „Áður en ég flutti til Monaco, spilaði ég á hverjum degi á sumrin þegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2013 | 11:00
Olazabal, Kahn og Matsuyama meðal þeirra sem komust í gegnum úrtökumót fyrir Opna bandaríska

José Maria Olázabal, 47 ára, fyrirliði sigurliðs Evrópu í Ryder Cup var einn af 12 kylfingum, sem náði að komast í gegnum úrtökumót á Walton Heath og tryggja sér sæti á Opna bandaríska risamótinu, sem fram fer í Merion Golf Club í Pennsylvaníu, 13.-16. júní n.k., en hann lék á alls 3 undir pari, 141 höggi (68 73) og varð að fara í bráðabana við 5 aðra keppendur. „Ég er mjög ánægður með að vera að fara á Merion,“ sagði tvöfaldi risamótsmeistarinn á Masters (Olazabal) „Það er ekki oft sem maður tekur þátt í sex manna bráðabana þannig að ég er ánægður að komast í gegn.“ Spánverjinn (Olazabal) og bresku Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2013 | 17:00
LPGA: Ilhee Lee sigraði á Pure Silk Bahamas mótinu

Það var Ilhee Lee, sem sigraði á Pure Silk Bahamas mótinu, sem fram fór á Ocean Club golfvellinum, á Paradise Island á Bahamas-eyjum. Ilhee Lee er frá Suður-Kóreu, fædd 13. desember 1988 og er því 25 ára. Þetta er fyrsti sigur hennar á LPGA-mótaröðinni. Ilhee spilaði á samtals 11 undir pari, á 126 höggum (41 43 42). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir varð Irene Cho frá Bandaríkjunum og í þriðja sætinu varð hin sænska Anna Nordqvist á samtals 8 undir pari. Paula Creamer, Mika Miyazato, Cristie Kerr, Karine Icher og Mindy Kim deildu síðan 4. sætinu á 7 undir pari hver. Vegna veðurs féll hið hefðbundna bjórbað sigurvegarans Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sam Snead – 27. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er einn besti kylfingur allra tíma …. Sam Snead. Sam fæddist 27. maí 1912 og hefði því orðið 101 árs í dag. Hann dó 23. maí 2002 þ.e. fyrir rúmum 10 árum. Sam Snead vann 82 mót á PGA Tour þ.á.m. risamót 7 sinnum. Hins vegar tókst honum aldrei að sigra á Opna bandaríska þó hann hafi landað 2. sætinu 4 sinnum. Á sínum tíma var Snead uppnefndur „Slammin Sammy“ vegna mikillar högglengdar sinnar. Snead er höfundar margra gullperlna í orðatiltækjum, er tengdust golfi t.a.m. „Hafðu tölu á krónum og aurum, haltu þér frá whiskey og gefðu aldrei pútt.“ Hann var vígður í frægðarhöll kylfinga 1974. Loks hlaut Sam Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

